![Fréttamynd](https://www.visir.is/i/029F0897710F9E2C6182CDC9A13A647E323E729941BF02CF7A9355F2FB26AE49_308x200.jpg)
„Úrslitakeppnin, er hún ekki bara byrjuð?“
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var enn í miðju umróti tilfinninganna þegar hann mætti í viðtal eftir sigur sinna manna á Selfossi í kvöld, 30-29.
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var enn í miðju umróti tilfinninganna þegar hann mætti í viðtal eftir sigur sinna manna á Selfossi í kvöld, 30-29.
ÍBV vann fjögurra marka sigur á Stjörnunni í fyrsta leik liðanna í einvígi þeirra í 8-liða úrsltum Olís-deildarinnar. ÍBV leiddi allan tímann en Stjarnan náði að gera leikinn spennandi undir lokin.
Fram hefur unnið báða leikina við Aftureldingu á nýliðnu tímabili Olís deildarinnar. Afturelding fær tækifæri til að svara fyrir það þegar liðin mætast í 8-liða úrslitum deildarinnar. Fyrsti leikur einvígisins er á sunnudaginn klukkan 16:00 á Framvellinum í Úlfarsárdal.
Þorsteinn Leó Gunnarson, leikmaður Aftureldingar er efnilegasti leikmaður Olís deildar karla að mati sérfræðinga Handkastsins. Benedikt Gunnar Óskarsson, leikmaður Vals, Einar Bragi Aðalsteinsson, leikmaður FH og Reynir Þór Stefánsson, leikmaður Fram, voru einnig tilnefndir.
Viktor Sigurðsson hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við handknattleiksdeild ÍR og er sagður vera við það að ganga í raðir Íslandsmeistara Vals.
„Leikmennirnir sem eru með mér hafa lært að gefa inn á línu. Ég er búinn að tuða í þeim í 6 ár, það er byrjað að skila sér. Svo er nálgunin búin að vera rétt allt tímabilið,“ sagði hinn 39 ára gamli leikmaður Aftureldingar, Einar Ingi Hrafnsson.
Í síðasta þætti Seinni bylgjunnar fór Arnar Daði Arnarsson yfir einvígi Vals og Hauka í 8-liða úrslitum Olís deildar karla í handbolta. Hann er ekki hrifinn af varnarleik Vals og segir að sex tapleikir liðsins í röð gefi til kynna að það sé meira að á Hlíðarenda en fólk heldur.
„Ég er klökkur,“ sagði Rúnar Kárason, leikmaður ÍBV, eftir að hafa verið valin besta hægri skyttan í Olís deild karla í handbolta. Arnór Snær Óskarsson, leikmaður Vals og Einar Rafn Eiðsson, leikmaður KA, voru einnig tilnefndir.
Kórdrengir unnu aðeins einn leik í Grill66-deild karla í handbolta í vetur og enduðu í neðsta sæti deildarinnar. Engu að síður hafa þeir möguleika á því að spila í efstu deild að ári.
„Þetta er flott viðurkenning,“ segir Valsarinn Benedikt Gunnar Óskarsson en hann var valinn besti leikmaður deildarkeppninnar í Olís-deildinni í handbolta, af sérfræðingum Handkastsins. Hann mun hins vegar ekkert spila í úrslitakeppninni.
Róbert Sigurðarson, hinn 27 ára gamli leikmaður ÍBV í handbolta, mun söðla um í sumar og halda til Noregs til að spila fyrir norska úrvalsdeildarfélagið Drammen.
KA tryggði sér áframhaldandi veru í Olís-deildinni að ári með eins marks sigri á Gróttu á Seltjarnarnesi í dag. Eftir tapið er ljóst að Grótta fer ekki í úrslitakeppnina.
„Þetta er mikill léttir og ég er stoltur af strákunum í dag. Það að fara í þennan leik var mjög erfitt svona undirbúningslega séð. Þetta er leikur þar sem það er mikið undir og tap hefði getað þýtt að við höfðum geta fallið svo klárlega léttir að enda þetta á sigri.“ Sagði Jónatan Magnússon, þjálfari KA, eftir eins marks sigur hans manna á Seltjarnarnesi fyrr í dag.
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var ósáttur með ýmis atriði í spilamennsku sinna manna eftir fjögurra marka ósigur á móti Aftureldingu í Olís-deild karla í handbolta í dag. Þetta var lokaleikur Stjörnunnar í deildinni og þurfa Garðbæingar að sætta við sjötta sætið í Olís-deildinni.
„Það er alltaf gott að fá titil. Við erum svo sem búnir að fagna honum og búnir að vinna hann, þannig að sælutilfinning að vinna er aðeins liðin hjá. Þessi sæla svíður,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, að lokinni bikarafhendingu deildarmeistaratitilsins til Valsmanna og stórtap gegn ÍBV.
ÍR tapaði gegn Fram 32-30 í lokaumferð Olís deildarinnar. ÍR endaði tímabilið í ellefta sæti og féll niður í Grill-66 deildina. Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, var nokkuð sáttur með tímabilið og ætlaði að þjálfa ÍR á næsta tímabili.
Haukar tryggðu sér sæti í úrslitakeppni Olís-deildarinnar með stórsigri á Herði á Ásvöllum í dag. Haukar mæta deildarmeisturum Vals í 8-liða úrslitum.
Í dag fór fram lokaumferðin í Olís-deildinni þetta tímabilið þar sem Valsmenn tóku á móti deildarmeistaratitlinum sem þeir tryggðu sér 3. mars síðastliðinn. Var afhendingin beint eftir stórtap liðsins gegn ÍBV. Lokatölur 25-35 í óspennandi leik þar sem Eyjamenn réðu lögum og lofum.
Fram vann ÍR í lokaumferð Olís deildarinnar 32-30. Úrslitin þýddu að ÍR endaði tímabilið í ellefta sæti og mun spila í næst efstu deild á næsta tímabili. Fram verður með heimavallarréttinn í átta liða úrslitum þar sem Framarar mæta Aftureldingu. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.
Mosfellingar unnu fjögurra marka sigur á Stjörnunni í Mosfellsbæ í dag, lokatölur voru 33-29. Þetta var síðasti leikur liðanna í deildinni og enda Mosfellingar í fimmta sæti á meðan Stjörnumenn þurfa að sætta sig við sjötta sætið.
FH og Selfoss skildu jöfn, 31-31, þegar liðin áttust við í lokaumferð Olís-deildar karla í handbolta í Kaplakrika í dag. Leikurinn skipti litlu máli fyrir bæði lið þar sem hvorugt liðið getur farið ofar eða neðar í töflunni. Þessi lið hafna í öðru og sjöunda sæti deildarinnar og mætast þar af leiðandi í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar.
Afturelding gerði góða ferð á Selfoss en liðið vann sannfærandi 30-37 þegar liðin áttust við í næststíðustu umferð Olís-deildar karla í handbolta í Set-höllinni í kvöld.
Stjarnan vann nokkuð sannfærandi fimm marka sigur á Val 37-32. Stjarnan endaði á að gera síðustu þrjú mörkin í fyrri hálfleik og gekk síðan frá Val í seinni hálfleik. Þetta var fimmti tapleikur Vals í röð.
Árni Bragi Eyjólfsson gat gengið sáttur frá dagsverkinu eftir öruggan átta marka sigur Aftureldingar gegn Selfossi í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 30-38. Árni skoraði 13 mörk fyrir Mosfellinga og var langmarkahæsti maður vallarins.
Valur tapaði gegn Stjörnunni 37-32. Þetta var fimmta tap Vals í röð og Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, hafði áhyggjur af taphrinu Vals.
ÍR er í fallsæti á meðan FH er í baráttu um 2. sæti Olís-deildar karla. ÍR-ingar komast upp úr fallsæti með sigri svo lengi sem KA-menn vinna ekki Frammara á sama tíma.
KA misstókt að tryggja sæti sitt áfram í deild þeirra bestu á næstu leiktíð eftir 26-28 tap gegn Fram fyrir norðan nú kvöld. Heimamenn byrjuðu mun betur en tókst ekki að fylgja góðri byrjun eftir og Framarar unnu sætan sigur. KA er því einu stigi á undan ÍR fyrir lokaumferðina en annað þessara liða mun falla. Fram áfram í 4. sæti eftir sigurinn.
ÍBV valtaði yfir Hauka, 37-24, þegar liðin leiddu saman hesta sína í næstsíðustu umferð Olís-deildar karla í handbolta í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í kvöld.
HSÍ hafnaði í gær kröfum handknattleiksdeildar Hauka sem kærði framkvæmd leiks liðsins gegn Gróttu í Olís-deild karla í handbolta þann 23. mars síðastliðinn. Eins marks sigur Gróttu, 27-28, stendur því og liðið heldur enn í veika von um sæti í úrslitakeppninni.
Úkraínumaðurinn Igor Kopishinsky hefur framlengt samning sinn við bikarmeistara Aftureldingar til tveggja ára.