„Enginn að æpa og enginn að spyrja spurninga“ Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands héldu hvor um sig stutta tölu fyrir sögulegan fund ráðherranna í Hörpu í kvöld, þar sem þeir fjölluðu um tengsl stórveldanna. Eftir framsögu þeirra héldu þeir áfram lokuðum fundarhöldum. Innlent 19. maí 2021 22:10
Mótmæla stefnu stórveldanna á meðan ráðherrarnir funda Á meðan utanríkisráðherrar Rússlands og Bandaríkjanna, Sergei Lavrov og Antony Blinken, funda í Hörpu munu mótmæli fara fram fyrir utan bygginguna á vegum Samtaka hernaðarandstæðinga. Ýmis félagasamtök hafa í dag sent frá sér áskorun til stórveldanna um að láta af andstöðu sinni við sáttmála Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum og undirrita hann sem fyrst. Innlent 19. maí 2021 19:35
Bandarísk C-5 herþota þveraði fluglegg Lavrovs yfir Hornafirði Herflutningaþota bandaríska flughersins af gerðinni Lockheed C-5 Galaxy flaug inn yfir Ísland og þvert fyrir fluglegg Ilyushin-þotu Sergeis Lavrovs nú síðdegis aðeins um 2-3 mínútum áður en þota utanríkisráðherra Rússlands kom að Íslandsströndum. Innlent 19. maí 2021 19:19
Sergei Lavrov mættur í Hörpu: Rússneski ráðherrann slær á létta strengi við fréttamenn Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands hittast á tvíhliða fundi í Hörpu núna innan stundar. Það verður fyrsti fundur háttsettra ráðamanna ríkjanna frá því Joe Biden tók við forsetaembættinu í Bandaríkjunum í janúar. Innlent 19. maí 2021 18:48
Mannleg mistök ástæða þess að ísbjörn í Berlín reyndist afkvæmi systkina Forsvarsmenn dýragarðsins í Berlín í Þýskalandi hafa greint frá því að ísbjarnarhúnninn Hertha sé í raun afkvæmi systkina. Segja þeir að ónákvæmni í skjölum sem fylgdu innfluttum ísbjörnum frá Rússlandi til garðsins skýri mistökin. Erlent 19. maí 2021 10:19
Þar sem ástin er kæfð Á Íslandi má oft sjá regnbogafána á ótrúlegustu stöðum. Oft eru þeir litlir og virðast kannski óþarfir, en jafnvel krítaður regnbogafáni á töflunni á kaffihúsi vermir mörgu hinsegin fólki um hjartað og gefur til kynna að um öruggara rými sé að ræða. Skoðun 19. maí 2021 09:31
Katrín: Mikil valdabarátta í aðdraganda fundarins Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist merkja mikla valdabaráttu í aðdraganda fundar Norðurskautsráðsins á morgun. Þjóðirnar séu að marka sér stöðu. Þetta sagði Katrín í viðtali við fréttastofu að loknum fundi hennar með Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Innlent 18. maí 2021 14:44
Blinken lentur á Keflavíkurflugvelli Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er lentur á Keflavíkurflugvelli. Ráðherrann mun funda með forseta Íslands, forsætisráðherra og utanríkisráðherra á morgun en hann er kominn hingað til lands til að sækja fund Norðurskautsráðsins á miðvikudag. Innlent 17. maí 2021 19:44
Mikill viðbúnaður þó talið sé að ógnin sé engin „Við teljum í sjálfu sér og vitum ekki um sérstaka ógn þessu samfara,“ segir Jón Bjartmars, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, spurður hvort erlendum ráðherrum, sem ætla að sitja fund Norðurskautsráðs hér á landi í vikunni, stafi ógn af einstaklingum eða hópum hér á landi. Innlent 17. maí 2021 18:01
Regnbogafánanum flaggað fyrir utan Höfða Regnbogafáninn hefur verið dreginn að húni fyrir utan Höfða í tilefni af alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks. Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar voru veitt þar í dag. Innlent 17. maí 2021 17:10
Leggja fram frekari gögn til að banna samtök Navalní Saksóknari í Moskvu lagði fram mikið magn gagna til að styðja kröfu sína um að dómari banni starfsemi samtaka Alexeis Navalní gegn spillingu í dag. Ekki er ljóst á hvaða forsendu saksóknarinn byggir kröfuna um að samtökin verði lýst öfgahreyfing þar sem leynd liggur yfir þeim gögnum sem hann lagði upphafleg fram. Erlent 17. maí 2021 10:52
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands funda í fyrsta sinn í Reykjavík Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, munu hittast á tvíhliða fundi í Reykjavík þann 20. maí næstkomandi. Innlent 12. maí 2021 17:34
Banna unglingsstúlku sem mótmælti Kreml að yfirgefa heimabæinn Dómstóll í Rússlandi bannaði nítján ára gamalli stúlku að yfirgefa heimabæ sinn í meira en tvö ár eftir að hún var sakfelld fyrir skemmdarverk. Stúlkan vakti mikla athygli þegar hún tók þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum árið 2019. Innlent 12. maí 2021 09:42
Sjö börn í hópi látinna í skotárás í rússneskum skóla Átta manns - sjö nemendur og einn kennari - eru látnir eftir skotárás sem gerð var í skóla í borginni Kasan í Tatarstan í Rússlandi í morgun. Þá er 21 sagður hafa særst í árásinni. Erlent 11. maí 2021 07:53
Innlit í Kreml Kreml, höfuðstöðvar yfirvalda í Rússlandi, er með dýrustu höfuðstöðvum heims. Forseti Rússlands hefur aðsetur þar og er það í dag Vladimir Pútin. Lífið 7. maí 2021 15:31
Ríkisstjórnin skoðar að kaupa Sputnik V fyrir 100 þúsund manns Íslenskum stjórnvöldum stendur til boða að fá skammta af rússneska bóluefninu Sputnik V fyrir 200 þúsund manns. Ríkisstjórnin skoðar nú þann möguleika að kaupa skammta fyrir 100 þúsund einstaklinga. Innlent 7. maí 2021 14:48
Kínverjar framleiða bóluefni fyrir Rússland Rússland hefur gert samninga við þrjá kínverska lyfjaframleiðendur um framleiðslu á bóluefninu Sputnik V en framleiðendur í Rússlandi hafa ekki í við eftirspurn eftir efninu. Samningar hafa verið gerðir við kínversk fyrirtæki um framleiðslu á 260 milljón skömmtum af bóluefninu. Erlent 3. maí 2021 13:29
Rannsaka atlögu Giuliani að sendiherranum í Kænugarði Bandarísk alríkisyfirvöld rannsaka nú hlut Rudys Giuliani, persónulegs lögmanns Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í því að ryðja sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu úr vegi árið 2019. Húsleit var gerð á heimili og skrifstofu Giuliani vegna rannsóknarinnar í vikunni. Erlent 30. apríl 2021 22:15
Lögmaður samtaka Navalnís handtekinn í Moskvu Ívan Pavolv, lögmaður and-spillingarsamtaka Alexeis Navalní, hefur verið handtekinn. Hann er sakaður um að hafa lekið upplýsingum um rannsókn og var handtekinn nokkrum klukkustundum áður en hann átti að mæta í dómsal þar sem hann er verjandi fyrrverandi blaðamanns sem hefur verið sakaður um landráð. Erlent 30. apríl 2021 10:34
Stefna brasilískum yfirvöldum fyrir meiðyrði vegna Spútnik V Framleiðandi rússneska kórónuveirubóluefnisins Spútnik V ætlar að stefna brasilísku heilbrigðiseftirlitsstofnuninni sem hafnaði beiðni nokkurra ríkja um að flytja efnið inn fyrir meiðyrði. Stjórnendur stofnunarinnar vísa ásökununum um meiðyrði á bug. Erlent 29. apríl 2021 23:17
Horaður Navalní lokar skrifstofum til að forða bandamönnum Alexei Navalní, rússneski stjórnarandstöðuleiðtoginn, var krúnurakaður og lítið meira en skinn og bein þegar hann kom fram opinberlega í fyrsta skipti frá því að hann var fangelsaður í dag. Á sama tíma tilkynnti náinn samverkamaður hans að skrifstofum samtaka hans víða um Rússland yrði lokað til að vernda félaga og bandamenn. Erlent 29. apríl 2021 18:18
Búlgarar bendla Rússa við sprengingar þar í landi Utanríkisráðuneyti Búlgaríu tilkynnti í dag að ríkisstjórn landsins ætlaði að vísa einum rússneskum erindreka úr landi, til viðbótar við þá tvo sem voru reknir úr landi fyrir njósnir í síðasta mánuði. Erlent 29. apríl 2021 15:05
Brasilía hafnar rússneska bóluefninu Lyfjayfirvöld í Brasilíu synjuðu nokkrum þarlendum ríkjum um heimild til þess að flytja inn rússneska bóluefnið Spútnik V gegn kórónuveirunni. Þau telja trúverðug gögn um virkni bóluefnisins skorta og vísa til galla á tilraunum með það. Rússar segja pólitík búa að baki synjuninni. Erlent 28. apríl 2021 21:54
Selunum sigað á Kína og Rússland Yfirmenn herafla Bandaríkjanna hafa ákveðið að gera töluverðar breytingar á einhverjum frægust herdeildum sérsveitarmanna í heiminum. Með breytingunum eiga svokallaðir Selir að leggja minni áherslu á stríðið gegn hryðjuverkum og meiri áherslu á átök milli ríkja. Erlent 28. apríl 2021 15:07
Kreml vængstífir samtök Navalní Samtökum Alexeis Navalní gegn spillingu var bannað að koma upplýsingum á framfæri á netinu eða í gegnum fjölmiðla, skipuleggja viðburði, taka þátt í kosningum eða nota bankareikninga með úrskurði dómstóls í Moskvu í dag. Yfir samtökunum vofir einnig að vera lýst öfgasamtök. Erlent 27. apríl 2021 18:57
Lífseigu samstarfi í geimnum að ljúka og keppt til tunglsins Í rúma tvo áratugi hafa geimvísindamenn og geimfarar Rússlands og Bandaríkjanna unnið náið saman, samhliða því að samskipti ríkjanna tveggja hafa beðið verulega hnekki. Þó viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum hafi verið beitt á báða bóga hefur geimurinn verið sér á báti. Sá tími er nú liðinn. Erlent 27. apríl 2021 09:15
Kremlverjar láta loka skrifstofum samtaka Navalní Rússnesk yfirvöld létu loka skrifstofu samtaka Alexeis Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu á meðan beðið er úrskurðar dómstóls um hvort að samtökin verði skilgreind sem öfgasamtök og bönnuð í dag. Samtök Navalní berjast gegn spillingu í Rússlandi. Erlent 26. apríl 2021 14:04
Forsetinn segir ekki ljóst að Rússar beri ábyrgð á sprengingunni Milos Zeman, forseti Tékklands, sagði í dag að enn sé ekki víst hvort að rússneskir leyniþjónustumenn hafi borið ábyrgð á sprengingu sem varð í vopnageymslu landinu árið 2014. Hann sagði einnig möguleika á því að sprengingin hafi aðeins verið slys og ekki megi skjóta loku fyrir þá kenningu. Erlent 25. apríl 2021 14:02
Navalní hættur í hungurverkfalli að læknaráði Tuttugu og fjögurra daga löngu hungurverkfalli Alexeis Navalní, rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans, er lokið. Navalní tilkynnti þetta í dag skömmu eftir að læknar vöruðu við því að hann gæti látið lífið héldi hann verkfallinu til streitu. Erlent 23. apríl 2021 14:36
Hvetja Navalní til að hætta hungurverkfallinu Læknar Alexeis Navalní, rússneska stjórnarandstæðingsins, hvetja hann til að hætta strax hungurverkfalli sínu í fangelsinu þar sem rússnesk yfirvöld halda honum. Þeir óttast að halda hann því áfram dragi það hann til dauða. Erlent 23. apríl 2021 07:43