
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Alvarlegar COVID-sýkingar hjá 80 ára og eldri þrátt fyrir þrjár sprautur
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur ákveðið að bjóða 80 ára og eldri auk íbúa hjúkrunarheimila, óháð aldri, fjórða skammtinn af bóluefni gegn COVID-19.

Sóttvarnalæknir mælir með fjórða bóluefnaskammtinum fyrir 80 ára og eldri
Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að bjóða einstaklingum 80 ára og eldri fjórða skammtinn af bóluefni gegn Covid-19, ef að minnsta kosti fjórir mánuðir eru liðnir frá þriðja skammtinum.

Boris biðst afsökunar á partýstandi
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, ávarpaði breska þingið í fyrsta skiptið í dag síðan hann var sektaður fyrir veisluhöld í miðjum heimsfaraldri.

Setja 750 milljónir í viðbrögð við félags- og heilsufarsafleiðingum Covid
Stjórnvöld ætla að verja allt að 750 milljónum króna á þessu ári í sértækar aðgerðir til að mæta félags- og heilsufarslegum afleiðingum kórónuveirufaraldursins. Ríkisstjórnin ákvað þetta á síðasta fundi sínum fyrir páska.

Dómari nam grímuskyldu úr gildi
Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur afnumið grímuskyldu í flugi og almenningssamgönum þar í landi. Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna mælir áfram með grímunotkun í flugi og almenningssamgöngum.

Þrjú látin úr Covid í Sjanghæ
Þrjú hafa látist úr Covid í Sjanghæ í Kína en útgöngubann hefur verið í borginni í nærri fjórar vikur. Kínversk stjórnvöld hafa hingað til haldið því fram að enginn hafi látist úr veirunni í borginni.

Spánverjar ganga af trúnni
Tæp 40% Spánverja eru trúlaus og þeim fer hratt fjölgandi. Á meðan á Covid-farsóttinni stóð fjölgaði trúleysingjum um rúmar fjórar milljónir manna. Mikill minnihluti hjónavígsla fer fram í kirkjum landsins.

Miklar hækkanir á álverði skilar Norðuráli hagnaði upp á tíu milljarða
Miklar verðhækkanir á álverði á heimsmarkaði skiluðu sér í því að tekjur Norðuráls á Grundartanga jukust um 39 prósent á árinu 2021 og námu samtals 791 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði um 103 milljarða króna. Mikil umskipti voru í afkomu álversins sem hagnaðist um 79,4 milljónir dala eftir skatta borið saman við tap upp á tæplega 9 milljónir dala á árinu 2020.

Örvænting og ringulreið í Sjanghæ vegna faraldursins
Mikil ringulreið hefur gripið um sig í Sjanghæ í Kína vegna kórónuveirufaraldursins. Útgöngubann stóð yfir í tvær vikur en sumum var hleypt út í fyrsta skipti nú í vikunni. Fólk flykktist í matvöruverslanir og kepptist við að ná matvörum og nauðsynjavörum.

Aðstoðarráðherra segir af sér vegna veisluhalda
Aðstoðarráðherra í dómsmálaráðuneyti Bretlands hefur ákveðið að segja af sér vegna veisluhalda í Downingstræti. Veisluhöldin voru haldin á meðan Covid faraldrinum stóð. Stjórnarandstæðingar hafa gagnrýnt veisluhöldin harðlega og krafist afsagnar forsætisráðherra og fjármálaráðherra.

Ónæmi náð gegn veirunni en óvíst hversu lengi það endist
Sóttvarnalæknir segir hjarðónæmi hafa náðst gegn ómíkronafbrigði kórónuveirunnar og að faraldurinn sé á niðurleið. Óvíst sé þó hversu lengi ónæmið vari og því sé verið að skoða að bjóða upp á fleiri örvunarskammta gegn veirunni.

Opinber framlög til þróunarsamvinnu í sögulegu hámarki
Annað árið í röð náðu opinber framlög til þróunarsamvinnu í heiminum sögulegu hámarki. Þau námu 179 milljörðum Bandaríkjadala á síðasta ári og hækkuðu um 4,4 prósent á milli ára.

Johnson og Sunak verða sektaðir vegna veisluhaldanna
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Rishi Sunak, fjármálaráðherra Bretlands, verða sektaðir vegna veisluhalda í Downingstræti á meðan Covid faraldrinum stóð en þetta staðfestir talsmaður ríkisstjórnarinnar við breska fjölmiðla. Stjórnarandstæðingar krefjast afsagnar þeirra.

Sjúklingur með Covid-19 lést á Landspítala
Karlmaður á áttræðisaldri með Covid-19 lést á Landspítala í gær.

Slakað á í Sjanghæ: 4,8 milljónum hleypt út í fyrsta sinn í tvær vikur
Yfirvöld í Kína hafa slakað lítillega á sóttvörnum í Sjanghæ og stórum hluta þeirra 25 milljóna sem þar búa var hleypt út í fyrsta sinn í tvær vikur. Fjölmiðlar ytra segja fólk hafa hlaupið í verslanir til að kaupa matvæli eftir mikla inniveru.

Mótmæla tveggja vikna útgöngubanni í Sjanghæ með því að öskra út um gluggann
Aldrei hafa fleiri tilfelli kórónuveirunnar greinst í Sjanghæ í Kína. Útböngubann hefur verið í borginni í tvær vikur þrátt fyrir að flestir hinna smituðu séu einkennalausir. Íbúar segja hættu á að fólk deyi úr hungri.

„Þreytt og þreklaus“ eftir Covid
Elísabet Bretadrottning segist þreytt og þreklaus eftir að hún smitaðist af Covid-19 í febrúar. Drottningin, sem verður 96 ára gömul í þessum mánuði, sýndi væg einkenni og hafði þeim verið líkt við flensu.

Tvær konur á áttræðisaldri með Covid-19 létust um helgina
Tvær konur á áttræðisaldri með Covid-19 létust á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi um helgina.

Aðeins 32 ára í forstjórastólinn og veltir milljörðum á ári
Guðrún Ragna Garðarsdóttir varð forstjóri Atlantsolíu aðeins 32 ára gömul. Félagið veltir um sjö milljörðum á ári og þótt fyrirséðar séu breytingar í olíugeiranum vegna orkuskiptanna, er engan bilbug á Guðrúnu eða félaginu að finna.

Ferðamenn byrjaðir að streyma til landsins og bílaleigur hafa vart undan
Bílaleigur hafa vart undan við að bæta í bílaflotann nú þegar ferðamönnum hefur fjölgað eftir afléttingar sóttvarnaaðgerða. Þá eru hótelbókanir komnar yfir sjötíu prósent í sumar. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar spáir góði sumri og að fjöldi ferðamanna verði aftur kominn í hátt í tvær milljónir á næstu tveimur árum.

Uppfæra sýkingartölur sjaldnar en áður
Tekin hefur verið ákvörðun um að uppfæra tölulegar upplýsingar á vefnum Covid.is sjaldnar og verða upplýsingar um fjölda smitaðra nú einungis uppfærðar tvisvar í viku. Breytingin tók gildi í gær en undanfarið hafa tölurnar verið uppfærðar alla virka daga.

Sjúklingum með Covid-19 fækkar áfram og enginn er á gjörgæslu
Alls er nú 31 sjúklingur inniliggjandi á Landspítala með Covid-19 en enginn þeirra er á gjörgæslu að því er kemur fram í tilkynningu á vef spítalans. Kona á sjötugsaldri með Covid-19 lést á Landspítalanum í gær og kona á áttræðisaldri lést um helgina, þann 2. apríl.

Hvetja atvinnurekendur til að sleppa kröfu um vottorð
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu biður atvinnurekendur um að sleppa því að óska eftir vottorði frá starfsfólki sem hefur náð sér eftir Covid-19. Ástæðan er mikið álag á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Grunaður um að hafa látið bólusetja sig níutíu sinnum
Sextugur þjóðverji sætir rannsókn eftir að upp komst að hann hefði þáð allt að níutíu skammta af bóluefni gegn Covid-19. Hann er sakaður um að hafa falsað og selt bólusetningarvottorð.

Skiluðu púltunum og pökkuðu loks saman eftir seinasta fund
Smitrakningateymi almannavarna og landlæknis var formlega lagt niður síðasta fimmtudag en alls hafa 112 starfað við rakningu frá því faraldurinn hófst hér á landi. Öll aðstaða fyrir upplýsingafundi hefur nú verið tekin niður en samskiptastjóri almannavarna segir best að sleppa yfirlýsingum um seinasta upplýsingafundinn að fenginni reynslu.

Tæplega þúsund börn farið oftar en fjórum sinnum í sóttkví
Alls hafa 989 börn þurft að fara oftar en fjórum sinnum í sóttkví hér á landi frá upphafi kórónuveirufaraldursins fram til 10. febrúar. Þar af eru 243 börn á aldrinum 0 til 5 ára og 548 á aldrinum 6 til 12 ára.

COVID stærsta ógn sem börn hafa staðið frammi fyrir
Á þriðja ári heimsfaraldurs kórónuveirunnar eru skólar í 23 löndum, með rúmlega 400 milljónir skólabarna, enn ekki starfandi að öllu leyti. Þegar er ljóst að fjölmörg börn snúa ekki aftur til náms. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, segir í nýrri skýrslu um afleiðingar COVID-19 að börn hafi ekki staðið frammi fyrir stærri ógn í heiminum í 75 ára sögu stofnunarinnar.

Sex manns greinst þrisvar með Covid-19
Sex manns hafa greinst þrisvar sinnum með Covid-19 hér á landi frá upphafi heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Alls hafa um fjögur þúsund greinst með endursmit sem skilgreint er á þann veg að sami einstaklingur greinist tvisvar og 60 dagar eða meira séu á milli greininga.

Afhjúpuðu styttu af þríeykinu
Stytta af þríeykinu svokallaða, Ölmu Möller landlækni, Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni verður afhjúpuð við hátíðlega athöfn við Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í Reykjavík í dag. Afhjúpunin hefst klukkan 10 og er almenningi boðið að vera viðstaddur. Fyrir þá sem ekki komast verður beint streymi á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Fjöldi látinna af völdum Covid-19 nú kominn yfir hundrað
101 hefur nú látist af völdum Covid-19 hér á landi frá upphafi heimsfaraldursins.