Stj.mál
75 76 77 78 79 80 81 82 83 … 187 ›
Passar upp á gengið Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að mikill missir verði að Davíð þegar hann hættir afskiptum af stjórnmálum. "Hann er sá stjórnmálamaður sem hefur komið hvað mestu í verk af íslenskum stjórnmálamönnum, bæði fyrr og síðar og hefur gjörbreytt þessu samfélagi." Innlent 14.10.2005 06:41
Fagnar boðuðum samgöngubótum Borgarstjórn Reykjavíkur fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja áherslu á samgöngubætur í höfuðborginni við ráðstöfun söluandvirðis Landsíma Íslands. Sérstaklega er því fagnað að ákveðið hafi verið að leggja átta milljarða króna til fyrsta áfanga Sundabrautar á árunum 2007-2010 og að ekki séu uppi áform um gjaldtöku af umferð um mannvirkið. Innlent 14.10.2005 06:40
Miðstjórnin einnig boðuð á fund Ekki aðeins þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur verið boðaður á fund í Valhöll í dag heldur einnig miðstjórn flokksins, en ráðherra og þingmenn flokksins grunar að Davíð Oddsson utanríkisráðherra muni þá tilkynna að hann hætti sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Innlent 14.10.2005 06:40
Fátt sem kemur á óvart Tilkynnt var í gær að Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, taki við sem sjávarútvegsráðherra 27. september. "Ég hef sem betur ferið verið þátttakandi í þeim miklu breytingum sem hafa orðið á undanförnum árum. Ég var um tíma formaður sjávarútvegsnefndar og sit í sjávarútvegsnefnd, þannig að það er fátt sem kemur mér í rauninni á óvart." Innlent 14.10.2005 06:41
Fátæklegra þjóðlíf "Flokksstarfið, störf á þinginu og þjóðlífið verður mun fátæklegra þegar Davíð hverfur af þessum vettvangi," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður og borgarfulltrúi. Innlent 14.10.2005 06:41
Brotthvarf Davíðs mikil tíðindi "Það eru auðvitað heilmikil pólitísk tíðindi þegar maður sem hefur sett jafnmikinn svip á stjórnmálin og Davíð Oddsson hefur gert er að hverfa af sjónarsviðinu," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. "Davíð er mjög öflugur og verðugur andstæðingur og ég mun auðvitað sakna hans af hinum pólitíska leikvangi. Innlent 14.10.2005 06:41
Hvatapeningar handa börnum Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt að úthluta hverju barni á aldrinum 6-16 ára hvatapeningum sem nota á til að greiða niður félagsgjöld í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Fyrir þetta ár verður upphæðin 10 þúsund krónur á barn, en 20 þúsund á árinu 2006. Innlent 13.10.2005 19:47
Vísað til Framkvæmdaráðs Kjartan Magnússon kynnti í borgarstjórn í gær tillögu að því að taka upp gjaldfrí bílastæði með tímatakmörkunum, líkt og gert hefur verið á Akureyri. Steinunn Valdís Óskarsdóttir lagði fram breytingartillögu, sem var samþykkt, um að vísa hugmyndinni til Framkvæmdaráðs, sem myndi skoða slíkt kerfi í samráði við hagsmunaaðila. Innlent 13.10.2005 19:47
Innri leið verður fyrir valinu Steinunn Valdís Óskarsdóttir sagði í borgarstjórn í gær að farin verði innri leið Sundabrautar fyrir þá átta milljarðar sem ríkið hefur ákveðið að veita til framkvæmdanna. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir að úthlutað hefði verið til mislægra gatnamóta Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, ef Reykjavíkurlistinn hefði ekki hafnað slíkum hugmyndum. Innlent 13.10.2005 19:47
Ríkið brátt skuldlaust við útlönd Skipti ehf. greiddi íslenska ríkinu 66,7 milljarða króna síðdegis í gær fyrir Landssíma Íslands. Þar af greiddi félagið rúma 32 milljarða króna í erlendri mynt og verður þeim hluta greiðslunnar varið strax til þess að greiða niður erlendar skuldir ríkissjóðs. Innlent 13.10.2005 19:47
Efast um áhuga sveitarfélaga Tillaga Ólafs F. Magnússonar, borgafulltrúi Frjálslyndra, um að Borgarstjórn Reykjavíkur samþykki að fela Reykjavíkurborg að leita eftir viðræðum við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu um sameiningu sveitarfélaganna var ekki samþykkt í gær. Þess í stað var bókun Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra samþykkt um að tillagan verði kynnt fyrir stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 13.10.2005 19:47
Vilja kosningu um álver Kynningarfundur bæjaryfirvalda í Hafnarfirði um deiliskipulag vegna stækkunar álversins í Straumsvík fór fram í gærkvöldi að viðstöddu fjölmenni. Oddviti Vinstri - grænna segir framgöngu forsvarsmanna álversins á fundinum misbjóða bæjarbúum. Innlent 13.10.2005 19:47
18 milljarðar í hátæknisjúkrahús Fyrirtækið Skipti ehf. greiddi íslenska ríkinu tæpa 67 milljarða króna í gær fyrir Landssíma Íslands hf., en þar með lauk umfangsmestu einkavæðingu í sögu þjóðarinnar. Innlent 13.10.2005 19:47
Nýr forseti hæstaréttar í BNA George Bush, forseti Bandaríkjanna, tilnefndi í dag John Roberts sem forseta hæstaréttar Bandaríkjanna í stað Williams H. Rehnquists, sem lést síðastliðinn laugardag. Skýrði Bush frá tilefningunni í Hvíta húsinu áður en hann fór til hamfarasvæðanna í Mississippi og Louisiana og hvatti Bandaríkjaþing til að staðfesta tilnefninguna fljótt og vel en réttarhléi lýkur 3. október. Erlent 14.10.2005 06:40
Verkamannaflokkurinn tapar fylgi Norski Verkamannaflokkurinn, undir forystu Jens Stoltenberg, tapar örlitlu fylgi í nýrri skoðanakönnun norska dagblaðsins og ríkisútvarpsins NRK, en um þriðjungur Norðmanna segist ætla að kjósa flokkinn í þingkosningunum sem fram fara í Noregi 12. september næstkomandi. Erlent 14.10.2005 06:40
Engin yfirlýsing frá Davíð Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokkinns, gaf engar yfirlýsingar um framtíð sína í stjórnmálum þegar hann ávarpaði fjölmennan fund Varðar - fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í gær. Innlent 14.10.2005 06:40
Leggur fram sameiningartillögu Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, mun á fundi borgarstjórnar á morgun leggja fram tillögu um að Reykjavíkurborg verði falið að leita eftir viðræðum við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðisins um sameiningu. Innlent 14.10.2005 06:40
Harðar deilur í sjónvarpskappræðum Hart var deilt þegar Angela Merkel, kanslaraefni Kristilega demókrataflokksins í Þýskalandi, og Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, hittust í 90 mínútna löngum sjónvarpskappræðum í gærkvöld. Innlent 14.10.2005 06:40
Davíð gefur engar yfirlýsingar Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kvaðst fyrir fund í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í kvöld ekki ætla að gefa neinar yfirlýsingar á fundinum um framboð til formanns á landsfundi flokksins í næsta mánuði. Innlent 14.10.2005 06:40
Vilja svör um öryggisráðið Þetta mál er ekki búið að gera upp endanlega og því stendur umsóknin enn. Við vinnum enn í málinu," segir Davíð Oddsson utanríkisráðherra um aðildarumsókn Íslands að öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Innlent 14.10.2005 06:40
Sjálfstæðisflokkurinn fær stuðning "Í fyrra var sjálfseignarfélagsformið málamiðlun milli stjórnarflokkanna en margir sjálfstæðismenn vildu þá hlutafélagsformið. Nú lítur út fyrir að Evrópusambandið hafi gengið í lið með Sjálfstæðisflokknum," segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar. Innlent 14.10.2005 06:40
Hefur ekki lokið BA-prófi Gísli Marteinn Baldursson, sem sækist eftir að verða borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, er ekki með BA próf í stjórnmálafræði, eins og hann heldur fram í bókinni Samtíðarmenn. Gísli Marteinn segir þetta eiga sér eðlilegar skýringar. Innlent 14.10.2005 06:40
Fagnar vilja fjölskyldunefndar Stefán Jón Hafstein, formaður menntasviðs Reykjavíkurborgar, fagnar því að fjölskyldunefnd ríkisstjórnarinnar skuli vilja skoða hag barnafólks frá því að fæðingarorlof lýkur við níu mánaða aldur þar til börnin fái pláss á leikskóla við átján mánaða aldur. Innlent 14.10.2005 06:40
Þjónustumiðstöð opnuð í borginni Reykvíkingar eiga að fá tækifæri til að hafa meiri áhrif á mótun og uppbyggingu borgarinnar með nýjum þjónustumiðstöðvum. Sú fyrsta var opnuð í dag, við Skúlagötu, en meginverkefni hennar er að veita upplýsingar um þjónustu í borginni, afgreiða umsóknir, veita félagslega ráðgjöf, skóla- og sérfræðiþjónustu og stuðning á heimilum. Innlent 13.10.2005 19:46
Vill greiðslur til að brúa bil Björn Ingi Hrafnsson, formaður fjölskyldunefndar ríkisstjórnarinnar, vill láta greiða foreldrum barna á aldrinum níu til átján mánaða svo að þau geti til dæmis og ef þeir kjósa greitt öfum og ömmum laun fyrir að passa börnin. Innlent 13.10.2005 19:46
Gísli Marteinn starfar fyrir RÚV "Ég er að störfum fyrir Ríkisútvarpið í ýmsum sérverkefnum. Þar á meðal er ég að vinna að undirbúningi fyrir afmælishátíð Ríkissjónvarpsins vegna fjörutíu ára afmælis þess auk þess að ýmsum málum vegna sjónvarpdagskrár vetrarins og þar á meðal evróvisíón keppninnar," segir Gísli Marteinn Baldursson. Innlent 13.10.2005 19:46
Samúðarskeyti til BNA og Íraks Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur sent George Bush Bandaríkjaforseta samúðarskeyti fyrir hönd ríkisstjórnarinnar vegna manntjónsins sem orðið hefur í Bandaríkjunum vegna fellibylsins Katrínar á síðustu dögum. Þá hefur hann einnig sent Ibrahim al-Jafari, forsætisráðherra Íraks, samúðarskeyti vegna harmleiksins fyrr í vikunni þegar tæplega þúsund Írakar létu lífið í Kazamiyah-hverfinu í Bagdad. Innlent 14.10.2005 06:40
Ragnar Sær sækist eftir 5. sætinu Ragnar Sær Ragnarsson, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fimmta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna næsta vor, en prófkjörið fer fram í byrjun nóvember næstkomandi. Ragnar Sær hefur undanfarin sjö ár starfað sem sveitarstjóri, fyrst í Biskupstungnahreppi og síðan í Bláskógabyggð. Innlent 14.10.2005 06:40
Þorbjörg sækist eftir 4. sæti Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í 4. sæti á lista sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Þorbjörg er menntuð á sviði uppeldis- og menntunarfræða og lauk MA-prófi í námssálfræði frá háskólanum í Washington en hún starfar nú sem ráðgjafi menntamálaráðherra. Innlent 14.10.2005 06:40
Hugmyndir móðgun við Álftnesinga Guðmundur A. Gunnarsson, bæjarstjóri á Álftanesi, segir að Sturla Böðvarsson samgönguráðherra eigi að segja af sér, fyrir að móðga bæjarbúa með óskynsamlegu tali um að honum lítist betur á að flytja innanlandsflugið til Álftaness en á Löngusker. Innlent 14.10.2005 06:40