Íslenski boltinn

Eto'o stefnir á að vinna Meistaradeildina með Inter

Ómar Þorgeirsson skrifar
Samuel Eto'o.
Samuel Eto'o. Nordic photos/AFP

Framherjinn Samuel Eto'o er stórhuga fyrir fyrirhuguð félagsskipti sín frá Barcelona til Inter en búist er við því að Kamerúnmaðurinn skrifi undir samning við Ítalíumeistarana á næsta sólarhring.

Eto'o hefur þrisvar sinnum unnið Meistaradeildina, einu sinni með Real Madrid og tvisvar sinnum með Barcelona og vonast til þess að vinna hana í fjórða skitpið með Inter.

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn til Ítalíu og að byrja nýtt líf þar. Ég vonast til að þessi nýja áskorun eigi eftir að veita mér hamingju og mitt fyrst markmið er að sjálfsögðu að vinna Meistaradeildina með Inter," er haft eftir Eto'o í ítölskum fjölmiðlum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×