Enski boltinn

AC Milan vill fá Joe Cole

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Joe Cole í leik með Chelsea.
Joe Cole í leik með Chelsea. Nordic Photos / Getty Images

AC Milan hefur boðið Joe Cole þrjár milljónir punda í árslaun fyrir að spila með félaginu en hann er nú samningslaus. Þessu er haldið fram í enskum fjölmiðlum í dag.

Hann hefur verið orðaður við Arsenal, Tottenham og Manchester United en er einnig sagður áhugasamur um að reyna sig í öðrum deildum en þeirri ensku.

Ítalskir fjölmiðlar halda því fram að landsliðsþjálfari Englands, Fabio Capello, hafi getað mælt með Cole við Adriano Galliani, einn forráðamanna Milan.

Vikulaun Cole yrðu samkvæmt þessu um 60 þúsund pund sem er um 20 þúsund pundum minna en hann var með hjá Chelsea. Hann hafði vonast eftir því að fá um 100 þúsund pund í vikulaun, samkvæmt enska götublaðinu The Sun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×