Skoðun

Íslendingar tala hjá SÞ

Ari Trausti Guðmundsson skrifar
Nú þegar nýliðinn er dagur kröfunnar um að þjóðir heims taki til hendinni vegna þess þáttar veðurfarsbreytinga sem er óvefengjanlega rakinn til mannlegra athafna, stendur yfir leiðtogafundur í Bandaríkjunum um málefnið. Staðreyndin er sú að það er nú þegar vitað hvað gera þarf í fyrstu til þess að snúa hægt og bítandi við blaðinu en það eru pólitískir þröskuldar í veginum.

Fyrsta skrefið er að taka mið af hörðum tilmælum um að minnka orkunotkun sem byggir á jarðefnaeldsneyti, alls staðar á landsvísu, og láta að minnsta kosti 3/4 hluta þekktra birgða í jörðu liggja kyrrar. Samhliða því verður að stöðva eyðingu stórvaxinna skóga og snúa við nýtingu jarðvegs í löndum þar sem skógarnytjar eru ekki sjálfbærar. Stöðva verður eyðimerkurmyndun.

Hvað þarf til þess arna? Að snúa baki við óheftum samkeppniskapítalisma, koma böndum á vöxt og starfsemi stórfyrirtækja í mörgum greinum og hefja umbætur á lýðræði í löndum heims. Meðal fyrirtækjanna sem lengst ganga í orkufylleríinu eru stóru olíufélögin og þá einmitt mörg þau vestrænu, eins og t.d. Statoil í Noregi, svo við lítum okkur nær. Eins mætti nefna rússnesk fyrirtæki á norðurskautssvæðinu eða bandarísk/kanadísk fyrirtæki sem rústa stórum, grónum landsvæðum í leit að olíusandi eða frönsk fyrirtæki sem beita sér í regnskógum S-Ameríku. Í Noregi einu hurfu um 560 milljónir tonna af kolefnisígildum út í loftið árið 2013 (vinnsla og brennsla þess sem þaðan kemur); um 1,5% af losun gróðurhúsagasa í heiminum (svipað og í Bretlandi), frá þjóð sem telur minna en eitt prómill af heimsþorpinu.

Svar á morgun

Auðvitað geta menn búið til mótbárur sem svo að efnahagur heimsins leggist í rúst ef hagvöxtur er minnkaður með öfugu handafli og hlustað á venjulegt fólk sem upp til hópa kallar með æ sterkari röddu á aðgerðir. Hún hljómar sífellt hærra einfaldlega af því að fólk sér hvernig hraðar loftslagsbreytingar eru teknar að ógna afkomu þess og lífsmáta. En það er ekki til sársaukalaus leið til baka, einmitt vegna þess hve stjórnvöld hafa lengi daufheyrst við vísindum jafnt sem varnaðarorðum hvarvetna að; jafnvel frá alþjóðastofnunum sem seint verða kenndar við annað en vörn fyrir núverandi hagkerfi.

Íslensk rödd dagsins hjá SÞ í New York færði fram gömlu sannindin um jarðhitakunnáttu og -notkun Íslendinga, landgræðslu til að binda það sem við spúum í loft upp og hét stuðningi við átak til að færa endurnýjanlega orku til allra. Gott og vel og þakkir fyrir það. En hljómaði stakt orð um mikilvægasta málið sem Íslendingar standa frammi fyrir: Olíu- og gasvinnslu norðan heimskautsbaugs? Íslenska innleggið í heimsborginni fjallaði líka um hættuna af súrnun sjávar og í því var „minnt á þróun mála á norðurslóðum sökum hlýnunar loftslags“ - eins og skrifað stendur á heimasíðu RÚV.

Nú er að spyrja hvernig öll þessi þróun samrýmist aukinni en ekki minnkandi losun gróðurhúsagasa á Íslandi og fyrirhugaðri jarðefnavinnslu, finnist auðlindirnar í nánd við landið. Svar óskast.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×