45. Hákon Daði Styrmisson
- Lið: ÍBV, Haukar
- Staða: Vinstra horn
- Fæðingarár: 1997
- Íslandsmeistari: 2016
- Bikarmeistari: 2015, 2020
- Deildarmeistari: 2016
- Markahæstur í úrslitakeppni: 2016
- Leikir í deild: 155
- Mörk í deild: 662
- Leikir í deild: 33
- Mörk í deild: 197
Hákon Daði Styrmisson vakti fyrst athygli í bikarhelginni 2015 þar sem ÍBV stóð uppi sem sigurvegari eins og alltaf þegar liðið spilar í Laugardalshöllinni.
Hann hélt svo upp á fasta landið um tímabilið 2015-16 og gekk í raðir Hauka og það reyndist mikið heillaskref fyrir hann. Hákon var fínn í deildarkeppninni en það var bara smá blástur á undan fellibylnum.
Hákon var stórkostlegur í úrslitakeppninni og skoraði 94 mörk í tólf leikjum þegar Haukar unnu sinn þrettánda Íslandsmeistaratitil. Hann var aðeins einu marki frá því að jafna metið yfir flest mörk í úrslitakeppni sem þeir Róbert Julian Duranona og Valdimar Grímsson eiga saman.

Vorið er tími Hákons en hann var litlu síðri í úrslitakeppninni á sínu síðasta tímabili hér á landi (2020-21). Í fjórum leikjum skoraði hann 37 mörk, eða rúm níu mörk að meðaltali í leik, þegar ÍBV var hársbreidd frá því að komast í úrslit. Hákon hefur alls leikið 33 leiki í úrslitakeppni og skorað í þeim 197 mörk, eða 5,97 mörk að meðaltali í leik, og er einn markahæsti leikmaður í sögu hennar.
Sumarið 2021 hélt Hákon til Þýskalands þar sem hann hefur plummað sig vel eftir erfið meiðsli. Enda hefur hann allt það sem hornamaður þarf að hafa; snöggur fram og mikla skottækni og er auk þess pottþétt vítaskytta.
44. Árni Bragi Eyjólfsson
- Lið: Afturelding, KA
- Staða: Hægra horn/hægri skytta
- Fæðingarár: 1994
- Silfur: 2015, 2016
- Valdimarsbikar: 2021
- Besti leikmaður: 2021
- Markakóngur í deild: 2021
- Leikir í deild: 173
- Mörk í deild: 831
- Leikir í úrslitakeppni: 31
- Mörk í úrslitakeppni: 127
Árni Bragi Eyjólfsson, Bjarki Sigurðsson sinnar kynslóðar, skaust upp á stjörnuhiminn íslenska handboltans tímabilið 2014-15. Nýliðar Aftureldingar enduðu í 2. sæti Olís-deildarinnar, slógu ÍBV út í átta liða úrslitunum og mættu svo ÍR í frábærri rimmu í undanúrslitunum.
Úrslitin réðust í oddaleik í Mosfellsbænum þar sem Árni Bragi var hetja heimamanna. Hann jafnaði í 25-25 undir lok venjulegs leiktíma og skoraði svo sigurmark Aftureldingar, 30-29, í framlengingunni.
Þetta var kannski eftirminnilegasti leikurinn á ferli Árna Braga en eftirminnilegasta tímabilið var eflaust 2020-21 þegar hann lék með KA. Þá lék ekki nokkur vafi á hver besti leikmaður Olís-deildarinnar var.

Það var Árni Bragi og hann sópaði til sín nánast öllum verðlaunum sem hægt var á lokahófi HSÍ. Hann var meðal annars valinn besti leikmaður deildarinnar af leikmönnum og þjálfurum og var markakóngur deildarinnar.
Árni Bragi sneri aftur í Mosfellsbæinn eftir draumatímabilið á Akureyri. Síðasta tímabil voru mikil vonbrigði hjá Aftureldingu í vetur hafa þeir rauðu og hvítu verið með læti og eru líklegir til afreka.
43. Alexander Örn Júlíusson
- Lið: Valur
- Staða: Vinstri skytta/varnarmaður
- Fæðingarár: 1994
- Íslandsmeistari: 2017, 2021, 2022
- Bikarmeistari: 2016, 2017, 2021, 2022
- Deildarmeistari: 2020, 2022
- Besti varnarmaður: 2018
- Leikir í deild: 218
- Mörk í deild: 225
- Leikir í úrslitakeppni: 51
- Mörk í úrslitakeppni: 48
Fljótlega eftir að Alexander Örn Júlíusson kom inn í lið Vals var ljóst að þar væri afburða varnarmaður á ferð. Hann spilaði einhverja sókn fyrstu tímabilin og var alveg slarkfær en varnarleikurinn var alltaf hans ær og kýr.
Alexander hefur verið í stóru hlutverki í síðustu þremur Íslandsmeistaraliðum Vals. Í meistaraliðinu 2017 spilaði hann sem bakvörður og átti stóran þátt í að stöðva Einar Rafn Eiðsson í úrslitaeinvíginu.

Alexander var svo áfram prímusmótor í vörn meistaraliðanna 2021 og 2022. Hann er mikill og góður liðsmaður og hefur lagt mikið á sig til að komast þangað sem hann hefur komist.
Alexander verður ekki föðurbetrungur í boltanum en er þó búinn að vinna meira en karl faðir sinn. En hann er í andskoti góðu og stóru hlutverki í langbesta liði landsins og fyrirliði þess og það er hægt að hugsa mér margt miklu verra.
42. Andrius Stelmokas
- Lið: KA
- Staða: Línumaður
- Fæðingarár: 1974
- Íslandsmeistari: 2002
- Bikarmeistari: 2004
- Deildarmeistari: 2001
- Silfur: 2001
- Valdimarsbikar: 2004
- Besti leikmaður: 2003
- Leikir í deild: 99
- Mörk í deild: 545
- Leikir í úrslitakeppni: 30
- Mörk í úrslitakeppni: 126
KA-menn hafa sjaldnast margt gott um granna sína í Þorpinu að segja. En frá þeim fengu þeir einn besta leikmenn sem hefur spilað í gula og bláa búningnum.
Eftir eitt tímabil með Þór gekk lítáíski línumaðurinn Andrius Stelmokas í raðir KA aldamótaárið 2000. Og hann var kletturinn sem þeir byggðu seinna velmegunarskeið sitt á.
Tímabilið 2000-01 varð KA deildarmeistari í þriðja sinn og komst í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn þar sem liðið tapaði fyrir Haukum í oddaleik. Tímabilið á eftir komst KA aftur í úrslit og fór aftur í oddaleik en vann þar Val, þrátt fyrir að hafa lent 2-0 undir. Stelmokas var næstmarkahæstur KA-manna í úrslitaeinvíginu með 21 mark úr aðeins 28 skotum. KA varð svo bikarmeistari í þriðja sinn 2004 eftir öruggan sigur á Fram í úrslitaleik.

Þegar Stelmokas kvaddi KA vorið 2004 hafði hann því unnið þrjá stóra titla með liðinu og komið sér í goðsagna tölu hjá stuðningsmönnum liðsins.
Hann var frábær varnarmaður og einn albesti línumaður sem hefur leikið hér á landi. Ekki mesti hæfileikamaðurinn en vann það upp með dugnaði, krafti, baráttu og leiklestri.
Aðrir en KA-menn gerðu sér líka grein fyrir hversu góður Stelmokas var. Til marks um það völdu leikmenn hann bestan í deildinni 2003 og þjálfarar árið eftir.
41. Giedrius Morkunas
- Lið: Haukar
- Staða: Markvörður
- Fæðingarár: 1987
- Íslandsmeistari: 2015, 2016
- Bikarmeistari: 2014
- Deildarmeistari: 2013, 2014, 2016
- Silfur: 2013, 2014
- Valdimarsbikar: 2015
- Besti markvörður: 2016
- Leikir í deild: 117
- Mörk í deild: 11
- Leikir í úrslitakeppni: 41
- Mörk í úrslitakeppni: 1
Það fór ekki mikið fyrir því þegar Haukar fengu 25 ára markvörð frá Litáen fyrir tímabilið 2012-13. Þetta var Giedrius Morkunas og þetta reyndust ein bestu félagaskipti í sögu Hauka.
Morkunas var varamarkvörður fyrir Aron Rafn Eðvarðsson fyrsta tímabil sitt á Ásvöllum en tók svo við aðalmarkvarðarstöðunni 2013 og hélt henni þar til hann hélt af landi brott 2017 og gekk í raðir Riihimäki Cocks í Finnlandi.
Morkunas var magnaður í úrslitakeppninni 2014 og 2015. Fyrra tímabilið var hann með 41,1 prósent hlutfallsmarkvörslu. Í úrslitaeinvíginu gegn ÍBV var hlutfallsvarsla Morkunas 45,6 prósent sem er fáránlega góð tölfræði. Það dugði Haukum þó ekki til að verða meistarar.

Það breyttist tímabilið eftir þar sem Haukar unnu alla átta leiki sína í úrslitakeppninni. Morkunas var frábær eins og tímabilið á undan og var með 45 prósent hlutfallsvörslu í átta leikjum í úrslitakeppninni. Morkunas var verðskuldað valinn besti markvörður deildarinnar 2015.
Haukar vörðu titilinn árið eftir en Morkunas náði þá ekki alveg sömu hæðum enda erfitt að viðhalda sama árangri og árin tvö á undan. Hann var samt í kringum fjörutíu prósentin.
Alls lék Morkunas með Haukum í fimm tímabil. Á þeim unnu þeir sex stóra titla og Morkunas átti ekki lítinn þátt í því. Hann var sannkallaður Goggi mega í Haukabúningnum.