Bein útsending: Katrín svarar fyrir samskiptin við Kára
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd heldur opinn fund miðvikudaginn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í dag og hefst hann kl. 9:10.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd heldur opinn fund miðvikudaginn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í dag og hefst hann kl. 9:10.
Dóra Björt Guðjóndóttir, borgarfulltrúi Pírata og Sævar Ólafsson íþróttafræðingur eiga von á sínu fyrsta barni saman. Þegar til skoðunar kom hjá ljósmóður á dögunum var Sævari gert að bíða fyrir utan og það þykir Dóru Björt ekki boðlegt.
Aflétting langflestra takmarkana vegna kórónuveirufaraldursins tók gildi í Svíþjóð á miðnætti. Þannig hefur regla um að veitingastaðir þurfi að loka klukkan 23 og hætta áfengissölu klukkan 22:30 verið felld úr gildi.
Félag atvinnurekenda, FA, ætlar að kæra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins vegna kaupa hennar á hraðprófum, sem FA segir heilsugæsluna ekki hafa boðið út í samræmi við lög um opinber innkaup.
Lyfjarisinn Pfizer hagnaðist um tæplega 37 milljarða dala, eða um 4,6 billjónir íslenskra króna, einungis með sölu á bóluefni sínu gegn Covid-19 á síðasta ári. Með því er bóluefnið orðið ein arðbærasta vara sögunnar.
Ef ómíkron útrýmir ekki fyrri afbrigðum kórónuveirunnar er ekki útilokað að fyrri afbrigði eða afkomendur nái yfirhöndinni á ný.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra reiknar með að stórt skref verði stigið í afléttingum sóttvarnaraðgerða á föstudaginn.
Sóttvarnalæknir mun ekki leggja til að öllum sóttvarnaaðgerðum verði aflétt nú í vikunni en boðar þó tillögur að afléttingum í minnisblaði til heilbrigðisráðherra á næstu dögum, fyrr en áætlað var. Hann metur stöðu faraldursins nokkuð góða.
1.294 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 53 á landamærum.
35 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19 og fjölgar því um fimm milli daga. Einn er nú á gjörgæslu og er viðkomandi í öndunarvél.
Utanríkisráðuneytið mun verja 250 milljónum króna til að styðja við starfsemi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) til að hraða dreifingu og aðgengi að COVID-19 bóluefnum í þróunarríkjum. Ísland hefur tekið virkan þátt í alþjóðlegum aðgerðum til stuðnings baráttu þróunarríkja gegn heimsfaraldrinum og áhrifum hans en auk framlagisins til UNICEF hafa stjórnvöld veitt rúmum milljarði króna til COVAX bóluefnasamstarfsins.
Leikur Kanada og Rússlands í íshokkí á Vetrarólympíuleikunum sem nú fara fram í Peking vakti mikla athygli þar sem bæði lið kepptu með grímur til að koma í veg fyrir að leikmenn smituðust af veirunni.
Heilbrigðisyfirvöld leggja á ráðin um verulegar tilslakanir á sóttvarnatakmörkunum í samráði við almannavarnir. Þær verða kynntar í lok viku. Það var allt toðfullt á skemmtistöðum miðbæjarins um helgina - eða eins og reglur leyfðu.
Jóhann Berg Guðmundsson verður enn fjarri góðu gamni er Burnley mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu annað kvöld. Sömu sögu er að segja af þeim Alex Telles og Fred en báðir nældu sér í kórónuveiruna á dögunum.
Ástralir hyggjast opna landamæri sín fullbólusettum ferðamönnum á ný þann 21. febrúar næstkomandi.
Óljóst er hvort næstu afléttingar á sóttvarnatakmörkunum verði kynntar eftir ríkisstjórnarfund á morgun eða síðar í vikunni. Ráðherra Sjálfstæðisflokksins kallar eftir því að fjarlægðaregla verði afnumin í háskólum og skilur ekki hvers vegna heilbrigðisráðherra tekur menningarviðburði fram yfir háskólastarf.
Kasper Dolberg er sönnun þess að þeir sem hafa fengið kórónuveiruna geta fengið hana aftur og svo enn aftur. Dolberg er nú smitaður í þriðja sinn.
1.367 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 132 á landamærum.
Metsala var á sumarhúsum á síðasta ári. Hinn aukni áhugi er rakinn til lægri vaxta, aukins sparnaðar og færri ferðalaga vegna kórónuveirufaraldursins.
Þrjátíu sjúklingar liggja nú inni á Landspítala með Covid-19 og fjölgar þeim milli daga. Tveir eru á gjörgæslu, annar þeirra í öndunarvél.
Borgarstjóri kanadísku höfuðborgarinnar Ottawa hefur lýst yfir neyðarástandi í borginni vegna mótmæla vörubílstjóra gegn takmörkunum hins opinbera vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Mótmælaaðgerðir bílstjóranna hafa nú staðið í rúma viku.
Mikil skerðing verður á þjónustu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á morgun, vegna ofsaveðursins sem áætlað er að skelli á landinu í nótt. Heilsugæslustöðvar verða þó opnar með lágmarksmönnun, til að sinna bráðaþjónustu.
1.415 greindust með Covid-19 innanlands í gær. 39 greindust smitaðir á landamærunum.
Kaffihúsið Barr sem starfrækt var í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í um sex mánaða skeið hefur hætt rekstri. Silja Björk Björnsdóttir, rekstrarstjóri og veitingastjóri kaffihússins, segir að kórónuveirufaraldurinn hafi vissulega haft sín áhrif en þó sé alltaf erfitt fyrir nýja staði að koma undir sig fótunum.
Sturla Snær Snorrason, keppandi í alpagreinum á Vetrarólympíuleikunum í Peking, hefur greinst jákvæður með kórónuveiruna.
Aldrei hafa fleiri greinst með Covid-19 hér á landi en í gær, eða 1.856.
Kona á sjötugsaldri lést í gær á gjörgæslu Landspítalans vegna veikinda af völdum Covid-19.
Mikið hefur mætt á starfsfólki hjúkrunarheimila að undanförnu, vegna sóttkvíar og einangrunar starfsfólks. Framkvæmdastjóri segir þó bjartari tíma fram undan og stefnt er á að aflétta ýmsum skerðingum innan veggja hjúkrunarheimilisins.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær Covid-smitaðan einstakling í annarlegu ástandi fyrir utan sóttvarnarhótel í Hlíðahverfi. Viðkomandi var vistaður í fangeklefa þar sem hann var ekki talinn í ástandi til þess að dvelja á hótelinu.
Uppistandshópurinn VHS hélt uppistand fyrir fullum sal gesta í Tjarnarbíói í kvöld. Þau segja samkomur fólks skipta miklu máli upp á stemninguna á uppistandssýningum.