Fréttir
125 126 127 128 129 130 131 132 133 … 334 ›
Illa unnin greining á Existu, segir stjórnarformaðurinn „Þessar hugleiðingar greiningarmanns Enskilda eru illa unnar og fjarri öllum veruleika. Greiningarmaðurinn þekkir greinilega ekki vel til Exista og gerir sig þar að auki sekan um rangfærslur í útreikningum,“ segir Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Existu. Viðskipti innlent 23.1.2008 10:53
Gengi Existu og SPRON aldrei lægra Gengi bréfa í Existu féll um 5,3 prósent og SPRON um tæp 3,5 prósent skömmu eftir að viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag en gengi félaganna hefur aldrei verið lægra. Fallið kemur í kjölfar greiningar sænska bankans Enskilda um finnska tryggingafélagið Sampo. Þar segir að eiginfjárstaða Existu sé verri en af sé látið. Nemi hún jafnvirði um 35 milljörðum króna og geti svo farið að félagið verði að losa um eignir, jafnvel með afslætti. Viðskipti innlent 23.1.2008 10:17
Seðlabankarnir eru kjölfestan Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans, segir fjármálamarkaði víða um heim ganga í þessar mundir í gegnum harkalega leiðréttingu. Hann segir hræringarnar undanfarið minna fólk á að efnahagsástand í einu landi geti haft áhrif í öðru. Viðskipti erlent 23.1.2008 09:39
Applerisinn féll á Wall Street Gengi hlutabréfa í bandaríska tölvuframleiðandanum Apple féll um fimmtán prósent eftir að fyrirtækið birti uppgjörstölur sínar fyrir síðasta ársfjórðung á bandarískum hlutabréfamarkaði í kvöld. Viðskipti erlent 22.1.2008 23:09
Viðsnúningur á hlutabréfamörkuðum Gengi hlutabréfa í Century Aluminum hækkaði um tæp fimm prósent í Kauphöll íslands í dag skömmu eftir að bandaríski seðlabankinn lækkaði óvænt stýri- og daglánavexti sína um 75 punkta. Viðskipti innlent 22.1.2008 16:31
Afkoma Bank of America dregst saman Hagnaður bandaríska bankans Bank of America nam 268 milljónum dala, jafnvirði rúmum 17,6 milljörðum íslenskra króna, á síðasta fjórðungi nýliðins árs. Til samanburðar nam hagnaðurinn 5,26 milljörðum dala á sama tíma í hitteðfyrra. Þetta er 95 prósenta samdráttur á milli ára. Viðskipti erlent 22.1.2008 16:01
Óvænt vaxtalækkun í Bandaríkjunum Seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði stýri- og daglánavexti óvænt í dag um heila 75 punkta. Ekki vart gert ráð fyrir viðlíka aðgerðum til að sporna gegn frekara falli á fjármálamörkuðum fyrr en á næsta vaxtaákvörðunarfundi seðlabankans í næstu viku. Vextir vestanhafs fara við þetta úr 4,25 í 3,5 prósent. Viðskipti erlent 22.1.2008 13:26
Fall í Asíu en rólegt í Evrópu Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu eru beggja vegna núllsins í dag þrátt fyrir mikið gengisfall í Asíu í morgun. Viðskipti erlent 22.1.2008 09:10
Fall við upphaf viðskiptadags í Japan Hlutabréf tóku dýfu við upphaf viðskiptadagsins í kauphöllinni í Tókýó í Japan í morgun, um eittleytið að íslenskum tíma í nótt, en fjárfestar í Asíu óttast mjög áhrif af hugsanlegum samdrætti í Bandaríkjunum. Nikkei-hlutabréfavísitalan féll um rúm 4,5 prósent við upphaf dags en jafnaði sig nokkuð eftir því sem á leið. Viðskipti erlent 22.1.2008 01:48
Kröfu Novators hafnað Krafa Novators, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar, um að fá tvo menn í stjórn finnska fjarskiptafélagsins Elisa, náði ekki fram að ganga, á fjölmennum hluthafafundi sem haldinn var í dag. Viðskipti innlent 21.1.2008 16:11
Evrópa fellur Skellur hefur verið á hlutabréfamörkuðum víða um heim í dag, þar á meðal í Kauphöllinni. Gengi bréfa í SPRON og FL Group hefur fallið um á milli sjö til átta prósent. Stórar eignir FL Group og Existu erlendis hafa fallið um allt að átta prósent. Viðskipti innlent 21.1.2008 12:55
Novator skautar á hluthafafund Elisu Í dag ræðst hvort Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, fái tvo menn í stjórn finnska fjarskiptafyrirtækisins Elisa. Hluthafafundur sem boðað var til að kröfu Novators verður haldinn í skautahöllinni í Helsinki í dag. Reiknað hefur verið með því að hundruð mæti til fundarins, en hluthafar í Elisa eru yfir 230 þúsund. Viðskipti innlent 21.1.2008 10:48
Fall á erlendum hlutabréfamörkuðum Gengisfall hefur verið á evrópskum hlutabréfamörkuðum frá upphafi viðskiptadagsins í dag. Ótti fjárfesta um yfirvofandi samdráttarskeið og efnahagskreppu fékk byr undir báða vængi í morgun þegar Nikkei-vísitalan féll um tæp fjögur prósent. Viðskipti erlent 21.1.2008 08:32
Teymi leiddi hækkun dagsins Gengi hlutabréfa í Teymi hækkaði mest skráðra félaga í Kauphöll Íslands í dag, eða um 2,03 prósent. Það er jafnframt eina félagið sem hefur hækkað á árinu. Á eftir fylgdu Flaga, sem hefur fallið í vikunni, Exista og Eimskipafélagið en gengi þeirra hækkaði um rúmt prósent. Viðskipti innlent 18.1.2008 16:57
Zimbabvebúar fá tugmilljónadalaseðilinn Seðlabanki Afríkuríkisins Zimbabve hefur undanfarið brugðist við ógnarhárri verðbólgu með prentun og útgáfu nýrra peningaseðla. Seðlarnir hlaupa á milljónum Zimbabve-dala og var tíu milljónadalaseðillinn settur í umferð í dag. Viðskipti erlent 18.1.2008 10:44
Teymi og Bakkavör ein á uppleið Gengi bréfa í Teymi og Bakkavör var það eina sem hækkaði í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöll Íslands. Félögin eru jafnframt þau einu sem greiningardeild Glitnis mælti með að fjárfestar keyptu í vikunni. Viðskipti innlent 18.1.2008 10:18
Lækkun á evrópskum hlutabréfamörkuðum Gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað á hlutabréfamörkuðum í Evrópu þrátt fyrir hækkun á asískum mörkuðum. Útlitið var hins vegar ekki bjart framanaf í Japan en Nikkei-vísitalan féll um tæp þrjú prósent við upphaf viðskiptadagsins og virtust asískir markaðir almennt á niðurleið. Viðskipti erlent 18.1.2008 09:30
FL Group tók flugið Gengi hlutabréfa í FL Group hækkaði mest skráðra félaga í Kauphöll Íslands í dag, eða um 3,33 prósent. Gengið í enda viðskiptadagsins í 10,85 krónum á hlut og hefur það fallið um rúm 25 prósent frá áramótum. Viðskipti innlent 17.1.2008 16:42
Tap Merrill Lynch meira en spáð var Bandaríski fjárfestingabankinn Merrill Lynch skilaði tapi upp á 9,83 milljarða dala, jafnvirði 642 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi síðasta árs samanborið við 2,35 milljarða dala hagnað árið á undan. Langmestu munar um 15 milljarða dala afskriftir á skuldabréfavöndlum og verðbréfum sem tengjast bandarískum undirmálslánum. Viðskipti erlent 17.1.2008 13:50
Nýr forstjóri yfir Carnegie Mikael Ericson hefur verið ráðinn forstjóri sænska fjárfestingarbankans Carnegie og mun hann taka við starfinu eigi síðar en í júlí í sumar. Bankinn lenti í miklum vandræðum í fyrrahaust þegar rannsókn efnahagsbrotayfirvalda leiddi til þess að fyrrum yfirmaður hans var dæmdur í hálfs árs fangelsi vegna innherjasvika. Maðurinn mun hafa gefið vini sínum trúnaðarupplýsingar um að góðar fréttir væru á leiðinni frá einu félagi í sænsku kauphöllinni og hagnaðist sá um tæplega 5 milljónir króna á þeim. Viðskipti erlent 17.1.2008 11:33
Góð jól hjá HMV Breska bóka- og tónlistarverslunin HMV átti góð jól, að sögn stjórnenda hennar en salan jókst um 9,4 prósent á milli ára í desember. Þetta er nokkuð annað hljóð en hjá öðrum verslunum í Bretlandi en í heildina talið dróst velta saman á milli ára. Viðskipti erlent 17.1.2008 10:52
Grænt upphaf í Kauphöllinni Íslensku bankarnir og fjármálafyrirtækin tóku sprettinn við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag og stóðu á grænu. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á erlendum hlutabréfamörkuðum eftir dapurt gengi undanfarna daga. Viðskipti innlent 17.1.2008 10:18
Sameining fær byr undir báða vængi Hugsanlegar sameiningar flugfélaga hafa fengið byr undir báða vængi í Bandaríkjunum en Delta Air Lines þykir vera að þreifa fyrir sér að kaupa ýmist United Airlines eða Northwest Airlines. Viðskipti erlent 17.1.2008 09:46
Hlutabréfaverð á uppleið víða um heim Gengi hlutabréfa í Evrópu og Asíu hefur almennt hækkað í dag eftir skell í byrjun vikunnar. Viðskipti erlent 17.1.2008 09:05
Verðbólga eykst í Bandaríkjunum Verðbólga jókst talvert í Bandaríkjunum í fyrra samanborið við 2006. Hún mældist 4,1 prósent en var 2,5 prósent í hitteðfyrra og hefur ekki hækkað jafn snarlega á milli ára síðan árið 1990. Mestu munar um verðhækkanir á matvöru og raforku. Viðskipti erlent 16.1.2008 14:01
Hagnaður JP Morgan niður um 34 prósent Hagnaður bandaríska bankans JP Morgan nam 2,97 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði rétt rúmra 194 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Til samanburðar nam hagnaðurinn 4,53 milljörðum dala á síðasta fjórðungi 2006 4,5 milljörðum dala. Þetta er því 34 prósenta samdráttur á milli ára, sem skýrist að langmestu leyti af afskriftum um á 2,54 milljarða dala á bandarísku undirmálslánasafni bankans. Viðskipti erlent 16.1.2008 13:11
Úrvalsvísitalan hækkar í alþjóðlegri niðursveiflu Gengi bréfa í Kaupþingi, Existu, Atorku og Bakkavör hefur hækkað í dag en önnur félög hafa lækkað í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Önnur félög hafa hins vegar lækkað, mest í Icelandic Group en gengi félagsins hefur fallið um tæp 4,9 prósent á hálftíma. Viðskipti innlent 16.1.2008 10:25
Verðfall víða um heim Talsverður taugatitringur hefur verið á evrópskum hlutabréfum í dag eftir fall á bandarískum mörkuðum í gær og asískum í morgun. FTSE-vísitalan í Bretlandi féll um rúm þrjú prósent skömmu eftir upphaf viðskiptadagsins en jafnaði sig fljótlega. Hún hefur það sem af er dags lækkað um 0,78 prósent. Viðskipti erlent 16.1.2008 09:49
Dreamliner ekki í loftið í bráð Flugvélasmiðir hjá Boeing eiga í vandræðum með smíði Boeing 787 Dreamliner-þotunnar, nýjustu farþegavélar fyrirtækisins, og gæti svo farið að afhending hennar dragist frekar á langinn. Þetta fullyrða dagblöðin Financial Times og Wall Street Journal í dag. Viðskipti erlent 16.1.2008 09:08
Gæti orðið dýrt að halda bréfunum „Hvert veltumetið á fætur öðru hefur verið slegið það sem af er ári. Gengi bæði verðtryggðra og óverðtryggðra skuldabréfa hefur hækkað töluvert. Það er mjög sjaldgæft að við sjáum svona miklar og kröftugar hreyfingar og við höfum orðið vitni að síðustu vikur,“ segir Hjördís Vilhjálmsdóttir, hagfræðingur hjá greiningu Glitnis. Viðskipti innlent 15.1.2008 21:12