Heilbrigðismál

Fékk nýra úr frænku sinni og öðlaðist nýtt líf um leið
Ísfirðingurinn Glóð Jónsdóttir öðlaðist nýtt líf fyrir tæpu ári þegar frænka hennar Svanlaug Björg Másdóttir gaf henni nýra. Reynslan hefur tengt þær stöllur órjúfanlegum böndum og 30. maí hefur nú ávallt sérstaka merkingu í huga Glóðar.

Ríkið eykur kostnaðarþátttöku vegna tannréttinga
Heilbrigðisráðherra ásamt fulltrúum Sjúkratrygginga og tannréttingasérfræðinga undirrituðu í dag tímamótasamning um tannréttingar. Samningurinn er sá fyrsti sinnar tegundar og skapar meðal annars forsendur til þess að auka greiðsluþátttöku ríkisins í tannréttingum.

Ólafur í ársleyfi til að huga að framtíð læknisþjónustu á Íslandi
Dr. Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, hefur fengið ársleyfi frá stjórnunarstörfum á spítalanum til að leið verkefnið „Framtíð læknisþjónustu á Íslandi“. Það var Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra sem fól Ólafi hlutverkið.

Barningur foreldra geti leitt til þunglyndis og örorku
Formaður Einhverfusamtakanna segir börn þurfa að bíða í allt að fjögur ár eftir einhverfugreiningu og stjórnvöld hafi lengi vitað af vandanum. Það skipti miklu máli fyrir börn að fá nauðsynlega þjónustu sem fyrst og barningur foreldra endi sjaldan við greiningu. Langvarandi barátta þeirra við kerfið geti jafnvel leitt til þunglyndis og örorku.

„Ég myndi ekki óska mínum versta óvini að hafa þennan kvíðahnút í maganum“
„Ef mér hefði verið sagt hér áður fyrr hvað það væri mikið álag að eiga einhverft barn og hversu mikil barátta það væri við kerfið hefði ég aldrei nokkurn tímann trúað því,“ segir Sólveig Hulda Benjamínsdóttir.

Kostnaður sjúklinga vegna Sjögrens heilkennisins
23. júlí ár hvert er dagur Sjögrens heilkennisins en það er jafnframt fæðingardagur læknisins Henrik Sjögren sem fyrst lýsti sjúkdóminum. Heilkennið flokkast til gigtarsjúkdóma og er röskun í ónæmiskerfinu (sjálfsónæmissjúkdómur) sem veldur því að ónæmiskerfið ræðst á heilbrigða vefi, í þessu tilviki kirtla sem framleiða raka, til dæmis tár og munnvatn og veldur því að virkni þeirra minnkar.

Óvenjumikið álag vegna umgangspesta og veirusýkinga
Afar erilsamt hefur verið á bráðamóttöku Landspítalans í sumar og á bilinu 170 til 240 manns sótt móttökuna á hverjum degi. Álagið má meðal annars rekja til fjölda ferðamanna á landinu en einnig ýmissa umgangspesta.

Milliflutningar hjá Félagsbústöðum taki lengri tíma þegar fólk hafi sérstakar óskir
Framkvæmdastjóri Félagsbústaða segir nóg til af íbúðum hjá félaginu fyrir fólk með hreyfihömlun. Erfitt sé að breyta íbúðum og auka aðgengi, sérstaklega gera úrbætur á lyftuaðstöðu, þegar um íbúð í fjölbýli þar sem eru fleiri eigendur er að ræða.

Rauði krossinn og borgin undirbúa bæði rekstur neyslurýmis
Rauði krossinn skoðar það nú hvort hægt sé að koma fyrir nýju neyslurými í einingahúsi frá Terra Einingum. Enn vantar þó landið fyrir húsið. Reykjavíkurborg segir mikinn vilja fyrir áframhaldandi rekstri en að þau kjósi frekar varanlegt húsnæði.

Stefán Eysteinn Sigurðsson er látinn
Framkvæmdastjórinn og fyrrverandi útvarpsmaðurinn Stefán Eysteinn Sigurðsson varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 16. júlí síðastliðinn. Stefán var 51 árs að aldri, fæddur 3. júní árið 1972.

Nóró lokaniðurstaðan og endurgreiða veikum gestum
Talið er að umfangsmikil hópsýking sem upp kom hjá starfsfólki og gestum á veitingastað Hamborgarafabrikkunnar í Kringlunni hafi verið af völdum nóróveiru. Þetta er niðurstaða embættis sóttvarnalæknis en nokkuð hefur verið á reiki hvort um nóróveirusýkingu hafi verið að ræða eða bakteríu sem veldur líkum einkennum og hefur greinst í álíka hópsýkingum.

Hafa greint bæði nóróveirur og E.coli bakteríur en ekkert í matnum
Gestir Hamborgarafabrikkunnar greindust sannarlega með nóróveiru. Frá þessu greinir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is en áður var talið að um bakteríusýkingu hefði verið að ræða.

Lyfið geti seinkað framþróun Alzheimer um þriðjung
Öldrunarlæknir segir nýtt líftæknilyf við Alzheimer vendipunkt. Það muni ekki allir geta fengið lyfið til að byrja sem þurfi á því að halda en lyfið getur seinkað framþróun sjúkdómsins um þriðjung.

Nýtt lyf gegn Alzheimer's sagt marka tímamót
Nýtt lyf er sagt marka tímamót í baráttunni gegn Alzheimer's sjúkdómnum eftir að niðurstöður lyfjarannsóknar gáfu til kynna að það hægi á hnignun heilans.

„Auðvitað ekki boðlegt að maðurinn þurfi að skríða inn á klósett“
Formaður Öryrkjabandalagsins segir óboðlegt að íbúðir Félagsbústaða séu ekki útbúnar fyrir fólk sem notast við hjólastóla. Mál manns sem er í hjólastól og fékk úthlutaða íbúð án hjólastólaaðgengis sýni skilningsleysið sem ríki innan kerfisins.

Hefur ítrekað slasast við að reyna komast á salernið heima hjá sér
Karlmaður á fimmtugsaldri með MS sjúkdóminn, sem leigir íbúð á vegum Félagsbústaða, hefur ítrekað dottið og slasað sig vegna skorts á hjólastólaaðgengi í íbúðinni. Félagsbústaðir telja ekki réttlætanlegt að laga íbúðina að þörfum hans og vilja að hann flytji.

Gæti verið sakfelld fyrir manndráp af gáleysi
Til greina kemur að Steina Árnadóttir, hjúkrunarfræðingurinn sem ákærð er fyrir að hafa valdið dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans, verði sakfelld fyrir manndráp af gáleysi fyrir Landsrétti.

Frumvarp um refsiábyrgð heilbrigðisstarfsfólks þurfi að taka fyrir í haust
Formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segist ekki skilja ákvörðun ríkissaksóknara um að áfrýja sýknudómi hjúkrunarfræðings á Landspítalanum. Ábyrgðin liggi nú hjá heilbrigðisráðherra sem hafi margoft lofað frumvarpi um refsiábyrgð heilbrigðisstarfsfólks.

Heilbrigðiskerfi í takt við tímann
Árið 1947 var samþykkt á Alþingi að hækka hámarksaldur starfsmanna ríkisins úr 65 árum í 70 ár á þeim forsendum ,,…að flestir opinberir starfsmenn væru færir um að gegna starfinu til sjötugs“. Þó ýmsar breytingar hafi verið gerðar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins frá árinu 1947 þá stendur reglan um 70 ára hámarksaldur starfsmanna ríkisins óbreytt.

Hátt í hundrað manns mögulega smitaðir af nóróveiru
Hátt í hundrað tilkynningar hafa borist heilbrigðiseftirliti vegna mögulegra nóróveirusmita. Líkur eru á óvenju stóru hópsmiti á veitingastöðum Hamborgarafabrikkunnar.

„Ég veit ekki á hvaða hausaveiðum yfirvöld eru“
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga gagnrýnir ákvörðun ríkissaksóknara, um að áfrýja sýknudómi hjúkrunarfræðings á Landspítalanum, harðlega.

Sýknudómi hjúkrunarfræðingsins áfrýjað
Sýknudómi Steinu Árnadóttur, hjúkrunarfræðings á Landspítalanum, hefur verið áfrýjað af ríkissaksóknara. Hún var sýknuð af ákæru um að hafa valdið dauða sjúklings á geðdeild spítalans fyrir tveimur árum, þar sem ekki taldist sannað að hún hefði haft ásetning til þess.

Vissi ekki af áhyggjum Lyfjastofnunar af megrunarlyfi
Landlæknisembættinu hafa ekki borist ábendingar um að megrunarlyfjum sé ávísað með óábyrgum hætti af læknum hér á landi. Embættið hefur óskað eftir upplýsingum frá Lyfjastofnun vegna ábendinga til Lyfjastofnunar Evrópu um möguleg tengsl lyfjanna við sjálfskaða-og sjálfsvígshugsanir.

„Alltaf varanlegur skaði eftir hvern bruna“
„Mér finnst sorglegt að sjá hversu margir eru illa brenndir,“ segir Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir. Hún segir vaxandi tíðni vera á húðkrabbameini í heiminum, Ísland sé engin undantekning á því og minnir á mikilvægi þess að bera á sig sólarvörn.

Nóróveirur grassera í skemmtiferðaskipunum
Skæðir nóróveirufaraldrar hafa ítrekað komið upp á skemmtiferðaskipum í ár. Nú síðast í skipi sem sigldi frá Íslandi til New York.

Hættulegur gróðureldareykur bætist við gasið
Mikill reykur frá gróðureldum bætist við gasmengunina í Litla Hrút. Loftgæðin í kringum gosstöðvarnar eru því mun verri en í eldgosunum í Fagradalsfjalli og Meradölum.

Mikilvægt að stíga varlega til jarðar í umræðunni um megrunarlyf
Forstjóri Lyfjastofnunar segir tilkynningar stofnunarinnar til eftirlitsnefndar Lyfjastofnunar Evrópu vegna mögulegra tengsla á milli þyngdarstjórnunarlyfja og sjálfsvígshugsana vera hluta af reglubundnu verklagi stjórnvalda. Ekki sé búið að sýna fram á bein tengsl með óyggjandi hætti. Fólk er hvatt til að tilkynna aukaverkanir en rúmlega tíu þúsund manns hér á landi eru á slíkum lyfjum.

Einhyrningsfyrirtæki sem vann gullið á ólympíuleikum efnahagslífsins
Fyrrverandi forseti Íslands segir Kerecis hafa unnið gullverðlaunin á ólympíuleikum efnahagslífs heimsins með 180 milljarða króna sölu þess til alþjóða læknavörufyrirtækisins Coloplast í dag. Á örfáum árum hefur Kerecis vaxið í að vera eitt verðmætasta fyrirtæki Íslandssögunnar, tvöfalt verðmætara en Icelandair og Eimskip.

Varað við skorti á sykursýkislyfi sem er vinsælt til megrunar
Lyfjastofnun varað við því að skortur á sykursýkislyfinu Ozempic sé fyrirsjáanlegur út þetta ár. Aukin eftirspurn eftir lyfinu valdi því að litlar birgðir séu til af því á Íslandi og víðar. Lyfið er vinsælt í megrunarskyni.

„Það bendir hver á annan og við höfum engin svör fengið“
Þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda virðist sem engin endurskoðun eigi sér stað hjá þeim um að leyfa ávísun lyfs til fullorðinna með taugahrörnunarsjúkdómsinn SMA, að sögn Flóka Ásgeirssonar lögmanns FSMA á Íslandi.