Spánn

Heimsbyggðin þurfi að velja: „Sameiginlegt átak eða sameiginlegt sjálfsmorð“
Hundruð skógarelda brenna víðs vegar um Evrópu í mikilli hitabylgju sem orðið hefur fjölda fólks að aldurtila og valdið gríðarlegu tjóni. Samgöngur lömuðust um stóran hluta Bretlandseyja í dag og Luton flugvelli var lokað. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir heimsbyggðina á krossgötum.

Gefa dýrunum frostpinna í hitabylgjunni
Það eru ekki bara mennirnir sem þjást vegna hitabylgjunnar sem ríður núna yfir Evrópu. Dýrum er ekki síður heitt og þess vegna hafa starfsmenn evrópskra dýragarða tekið upp á því að gefa dýrunum frostpinna til kæla þau niður.

Íbúum í Suður-Evrópu gert að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda
Frönsk stjórnvöld hafa fyrirskipað um sextán þúsund manns að yfirgefa heimili sín vegna hættu af skógareldum í suðvesturhluta landsins. Eldar ógna einnig svæðum á Spáni, Grikklandi og í Króatíu.

Þúsundir flýja heimili sín vegna gróðurelda
Þúsundir manna þurftu að flýja heimili sín undan gróðureldum sem geisuðu víða um Vestur-Evrópu í gær og hafa eyðilagt gríðarlegt landflæmi. Gróðureldarnir hafa kviknað eftir hitabylgju sem ríður nú yfir Evrópu.

Herra Réttlæti settur af sem bæjarstjóri vegna eiturlyfjamisferlis
Bæjarstjóri í litlum bæ á Spáni hefur verið handtekinn, grunaður um aðild að stórtækum eiturlyfjahring sem teygir anga sína um 4 héruð Spánar.

Spænska deildin fær nýtt nafn
Spænska úrvalsdeildin, La Liga, mun fá nýtt nafn árið 2023 eftir að aðalstyrktaraðilar deildarinnar síðustu sex ár, BBVA og Santander bankanir, ákváðu að þeir myndu ekki endurnýja samning sinn við deildina.

Fyrsta nautahlaup San Fermín hátíðarinnar í þrjú ár
San Fermín hátíðin í Pamplóna á Spáni hófst í morgun með hinu víðfræga nautahlaupi um götur borgarinnar. Þetta er í fyrsta sinn í 3 ár sem hátíðin fer fram vegna Covid-farsóttarinnar. Talið er að um milljón manns sæki hátíðina í ár.

Hóta verkfallsaðgerðum vegna slæmra aðstæðna
Flugfreyjur og -þjónar flugfélagsins Ryanair á Spáni stefna á að fara í verkfall í tólf daga í júlí. Aðstæðurnar sem flugfélagið býður upp á séu ekki boðlegar fyrir starfsfólk.

Enn sanka dansarar úr Reykjanesbæ að sér verðlaunum
Dansarar úr Reykjanesbæ virðast ekki geta hætt að vinna til verðlauna á heimsmeistaramótinu í dansi á Spáni. Í gær vann danspar í eldri flokki til bronsverðlauna.

Santiago Bernabeu verður einn fjölhæfasti íþróttaleikvangur heims
Þú ferð ekki bara á fótboltaleiki á Santiago Bernabeu á næstu árum og nú er hægt að sjá hvernig Spánverjarnir fara að því að breyta leikvanginum á milli íþróttaviðburða.

Ungar dansstelpur úr Reykjanesbæ unnu silfur á heimsmeistaramótinu
Enn gera stelpurnar úr dansskólanum Danskompaní úr Reykjanesbæ það gott á heimsmeistaramótinu í dansi sem nú fer fram á Spáni. Hópur úr skólanum vann til silfurverðlauna í gærkvöldi.

Stelpurnar komast á heimsmeistaramótið í tæka tíð
Búið er að tryggja öllum dansstelpunum frá danskólanum JSB flugfar frá Íslandi í dag eða á morgun. Að sögn aðstoðarskólastjóra skólans komast þær á áfangastað í tæka tíð til að keppa á heimsmeistaramóti í dansi, þótt litlu hafi mátt muna.

Leika sér ekki að því að aflýsa flugi
Vél flugfélagsins Play er komin í gagnið á ný eftir að ekið var á hana fyrir helgi. Tafir urðu á viðgerð sem varð til þess að aflýsa þurfti flugferðum til og frá Madrid, flugfarþegum til mikils ama. Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri Play, segir flugfélagið ekki leika sér að því að aflýsa flugi - allt sé reynt áður en gripið sé til þess ráðs.

Danshópur úr Reykjanesbæ vann heimsmeistaratitil
Hópur ungra dansara úr dansskólanum Danskompaní í Reykjanesbæ vann rétt í þessu til gullverðlauna á heimsmeistaramótinu í dansi sem nú fer fram á Spáni.

Dansstelpur óttast að missa af keppni eftir að flugi þeirra var aflýst
Hópur stelpna frá danslistarskóla JSB lenti í því að flugi hans til Madrídar með flugfélaginu Play var aflýst. Stelpurnar, sem eru á aldrinum fimmtán til sautján ára, eru miður sín enda stefnir í að þær missi af alþjóðlegri danskeppni sem þær hafa æft fyrir í fleiri mánuði.

Flaug til Mallorca eftir að hafa verið neitað um þungunarrof á Möltu
Bandarísk kona sem hefur ekki fengið að gangast undir þungunarrof á Möltu þrátt fyrir að hún sé að missa fóstur og að heilsa hennar sé í hættu, fékk í gær grænt ljós frá tryggingafélaginu sínu til að ferðast til Spánar til að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.

Hundruð meta slegin í hitabylgjunni í Evrópu
Hitabylgja sem gekk yfir hluta meginlands Evrópu um helgina gat af sér hundruð hitameta, ekki síst í Frakklandi þar sem hitinn var hve hæst yfir meðaltali. Í Baskalandi var sögulegt hitamet slegið rækilega.

Fyrrverandi stórstjarna Barcelona og Inter Milan fékk 22 mánaða dóm
Samuel Eto'o, fyrrverandi sóknarmaður Barcelona, Inter Milan og mun fleiri liða, hefur verið dæmdur í 22 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Eto'o játaði að hafa svikið 3,2 milljónir evra undan skatti er hann spilaði fyrir Barcelona.

Shakira sökuð um stórfelld skattsvik
Fátt getur nú komið í veg fyrir að kólumbíska söngstjarnan Shakira verði ákærð fyrir milljarða skattsvik á Spáni. Söngkonan segist ekki ætla að semja um greiðslu sektar til að ljúka málinu, en verði hún fundin sek á hún nokkurra ára fangelsisvist yfir höfði sér.

Skógareldar loga um allan Spán
Ekkert lát er á gríðarlegri hitabylgju á Spáni sem nú hefur staðið í meira en viku. Skógareldar loga um allt land og hefur þurft að rýma á annan tug bæja á Norður-Spáni.

Íslendingur dæmdur í átta og hálfs árs fangelsi fyrir barnaníð á Spáni
Dómstóll á Spáni hefur dæmt íslenskan karlmann um sextugt í átta og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn að minnsta kosti sex börnum í Torre-Pachecho í Múrsíu á suðausturhluta Spánar. Brotin voru framin á árunum 2020 til 2021.

Stökkið: „Það er mikið um duglega vasaþjófa“
Hilmar Ragnarsson starfar sem forritari í Barcelona þar sem hann býr með unnustu sinni Raphaellu Santana og hundinum þeirra Nölu. Hilmar flutti upphaflega til Madríd haustið 2015 í skiptinám en kom aldrei heim og færði sig yfir til Barcelona þremur árum síðar.

Ætla að leyfa kannabis í lækningaskyni
Allt bendir til þess að notkun kannabis í lækningaskyni verði innan skamms leyfð á Spáni, en það er nú þegar leyft í tæplega helming ríkja Evrópusambandsins. Læknir sem styður lögleiðingu slíkra lyfja segir algerlega fáránlegt að afstaða fólks til þessa lyfs skuli fara eftir því hvort það sé hægri- eða vinstrisinnað.

Stökkið: „Andlega var ég gríðarlega tilbúin að flytja út“
Selma Soffía Guðbrandsdóttir flutti til Spánar fyrir tveimur árum til þess að fara í nám en ákvað eftir námið að vera þar áfram og starfar í dag sem þjónustustjóri (e. Client services manager) hjá fyrirtæki í Marbella sem leigir út lúxus villur.

Nadal vann opna franska í fjórtánda sinn
Spænska tennisgoðsögnin Rafael Nadal vann öruggan sigur á Norðmanninum Casper Ruud á opna franska meistarmótinu og skráði sig enn einu sinni á spjöld sögunnar.

Shakira og Piqué skilja eftir ellefu ára samband
Kólumbíska tónlistarkonan Shakira og knattspyrnumaðurinn Gerard Piqué hafa ákveðið að skilja að borði og sæng eftir ellefu ára samband.

Myrtar fyrir að vilja skilja við eiginmenn sína
Tvær ungar konur, búsettar í Barcelona á Spáni, voru myrtar í heimalandi sínu Pakistan, þegar þær neituðu að taka eiginmenn sína með heim til Spánar. Þær voru þvingaðar til að giftast frændum sínum fyrir nokkrum árum. Málið hefur beint sjónum Spánverja að þvinguðum hjónaböndum.

„Ópíumvampírur“ ferðast til Spánar í leit að auðveldri vímu
Ferðamenn koma víðsvegar að úr Evrópu að árbökkum Tagus-ár á Íberíuskaga til að stelast í morfínríkan safa ópíumvalmúans. Afurðir plöntunnar eru notaðar til framleiðslu sterkra verkjalyfja en ferðamennirnir verka þær ólöglega í vímuskyni og hafa fyrir vikið hlotið heitið „ópíumvampírur“. Þessi hættulegi túrismi er liður í mikillu aukningu á neyslu ópíums og ópíum-afleiddra efna í heiminum.

„Fólk þarf stundum að láta sannfæra sig um að prófa“
Fjölmiðlakonan Snæfríður Ingadóttir og fjölskyldan hennar hafa ferðast um allan heim án þess að borga fyrir húsnæði. Það var einn snjóþungan vetur sem hún fékk nóg af því að allir væru alltaf blautir í fæturna og ákvað að leita lausna.

Vísur Vatnsenda-Rósu í Flamenco kjól
Ný útgáfa af Vísum Vatnsenda-Rósu er að vekja athygli. Reynir Hauksson, íslenskur Flamenco gítarleikari búsettur í Madríd, tók upp myndband við lagið þekkta ásamt einum af fremstu Flamenco-gítarleikurum heims.