NBA
229 230 231 232 233 234 235 236 237 … 327 ›
NBA í nótt: Rose öflugur í sigri Chicago á San Antonio Derrick Rose hélt upp á að vera fyrsti byrjunarliðsmaður Chicago í Stjörnuleik NBA-deildarinnar síðan Michael Jordan með því að skora 42 stig í sigurleik gegn San Antonio Spurs, 109-99. Körfubolti 18.2.2011 09:11
Meistaralið Lakers tapaði gegn lélegasta liði NBA deildarinnar Að venju var nóg um að vera í NBA deildinni í körfuknattleik í gær þar sem 12 leikir fóru fram. Hlé verður nú gert á deildarkeppninni fram yfir næstu helgi en Stjörnuhelgi NBA deildarinnar fer fram um helgina. Meistaralið LA Lakers er langt frá sínu besta þessa dagana og í gær tapaði Lakers gegn slakasta liði deildarinnar, Cleveland, á útivelli 104-99. „Við fórum í Stjörnuhelgarfrí áður en leikurinn hófst,“ sagði Phil Jackson þjálfari Lakers eftir leikinn. Körfubolti 17.2.2011 08:16
NBA í nótt: Miami á sigurbraut Miami vann í nótt sigur á Indiana, 110-103, í NBA-deildinni í körfubolta. Dwyane Wade fór á kostum í fyrri hálfleik og jafnaði þá félagsmet. Körfubolti 16.2.2011 09:05
NBA í nótt: Charlotte lagði Lakers Gerald Wallace skoraði 20 stig og tók 11 fráköst í 109-89 sigri Charlotte Bobcats gegn meistaraliði LA Lakers á heimavelli. Þetta er annar tapleikur Lakers í röð en Kobe Bryant skoraði 20 stig fyrir Lakers gegn liðinu hans Michael Jordan. Körfubolti 15.2.2011 10:02
NBA í nótt: Miami tapaði fyrir Boston í þriðja sinn Miami Heat tapaði enn einu sinni fyrir Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, í þetta sinn á útivelli með þriggja stiga mun, 85-82. Körfubolti 14.2.2011 08:59
NBA: San Antonio, Dallas og Chicago unnu öll í nótt San Antonio Spurs, Dallas Mavericks og Chicago Bulls unnu öll leiki sína í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og þá vann New York Knicks nágrannaslaginn við New Jersey Nets þrátt fyrir að leika án stjörnuleikmanns síns Amare Stoudemire. Körfubolti 13.2.2011 11:03
NBA: Loksins sigur hjá Cleveland-liðinu Cleveland Cavaliers endaði 26 leikja taphrinu sína í NBA-deildinni í körfubolta í nótt með því að vinna 126-119 sigur á Los Angeles Clippers eftir framlengdan leik. Körfubolti 12.2.2011 10:49
Michael Jordan sýndi gamla takta á æfingu hjá Charlotte Michael Jordan sem á árum áður var besti körfuboltamaður heims mætti óvænt á æfingu NBA liðsins Charlotte Bobcats í gær. Jordan þarf víst ekki að spyrja um leyfi fyrir slíkt því hann er eigandi félagsins. Hinn 48 ára gamli Jordan hefur tekið virkan þátt í séræfingum leikmanna á undanförnum vikum og í gær fór eigandinn með þetta alla leið og spilaði á æfingunni. Körfubolti 11.2.2011 10:59
Ray Allen skráði nafn sitt í sögubækurnar í NBA deildinni Ray Allen, leikmaður Boston Celtics, skrifaði nafn sitt í sögubækurnar í NBA deildinni í gær en hann hefur nú skorað flestar þriggja stiga körfur í deildinni frá upphafi – alls 2.561. Metið var í eigu Reggie Miller sem lék í 18 tímabil með Indiana Pacers en Miller var viðstaddur þegar Allen bætti metið – í hlutverki íþróttafréttamanns. Körfubolti 11.2.2011 08:46
Lakers náði fram hefndum gegn Boston Meistaralið LA Lakers náði fram hefndum gegn Boston Celtics í gær í NBA deildinni í körfubolta með 92-86 sigri á útivelli. Keppnisfyrirkomulagið í NBA er með þeim hætti að þessi lið mætast aðeins tvisvar á tímabilinu og Boston hafði betur á heimavelli Lakers í fyrri leiknum. Þessi lið mættust í úrslitum NBA deildarinnar s.l. vor og þar hafði Lakers betur. Körfubolti 11.2.2011 08:20
Jerry Sloan hættur hjá Utah eftir 23 ára starf Jerry Sloan hætti í kvöld sem þjálfari Utah Jazz liðsins í NBA-deildinni í körfubolta en hann er búinn að þjálfa liðið í 23 ár og hefur stýrt liðinu til sigurs í 1127 leikjum. Körfubolti 10.2.2011 23:29
Cleveland tapaði 26. leiknum í röð og jafnaði met Taphrina Cleveland Cavaliers í NBA deildinni ætlar engan endi að taka og í gær tapaði liðið gegn Detroit á heimavelli 103-94. Cleveland hefur nú tapað 26 leikjum í röð og jafnaði met Tampa Bay Buccaneers sem tapaði 26 leikjum í röð 1976-1977 í NFL deildinni. Þessi lið deila nú meti sem enginn vill eiga yfir lengstu taphrinu í atvinnuíþrótt í Bandaríkjunum. Körfubolti 10.2.2011 08:20
NBA: LeBron skoraði 41 stig í sjöunda sigri Miami í röð LeBron James var í stuði þegar Miami Heat vann 117-112 sigur á Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en þetta var fyrsta tap Indiana-liðsins síðan Frank Vogel tók við liðinu. Indiana-liðið var búið að vinna fjóra leiki í röð síðan að Larry Bird gaf Vogel tækifærið. Körfubolti 9.2.2011 08:26
Sloan framlengir við Utah Jazz Gamla brýnið Jerry Sloan er ekki af baki dottinn og hann er nú búinn að framlengja samning sinn við Utah Jazz um eitt ár. Körfubolti 8.2.2011 11:02
NBA: Enn tapar Cleveland Cleveland Cavaliers heldur áfram að skrá nafn sitt í NBA-sögubækurnar. Liðið tapaði í nótt sínum 25 leik í röð og spurning hvenær þessi taphrina endar. Körfubolti 8.2.2011 09:00
NBA: Sex sigrar í röð hjá Miami, Boston vann Orlando Dwyane Wade átti flottan leik þegar Miami Heat vann 18 stiga sigur á Los Angeles Clippers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og Rajon Rondo var allt í öllu þegar Boston Celtics vann 11 stiga sigur á Orlando Magic. Amare Stoudemire skoraði 41 stig í sigri New York og Indiana Pacers byrjar afar vel undir stjórn Frank Vogel. Körfubolti 7.2.2011 01:40
Cleveland setti vafasamt met í NBA-deildinni Hversu mikið saknar Cleveland LeBron James? Ansi mikið því liðið getur nákvæmlega ekki neitt án hans og setti í nótt vafasamt met er það tapaði 24 leik sínum í röð. Það hefur engu öðru liði í NBA-deildinni tekist áður. Körfubolti 6.2.2011 10:56
Love tók sæti Yao Ming í stjörnuleiknum Frákastakóngurinn Kevin Love er á leið í stjörnuleik NBA-deildarinnar. David Stern, yfirmaður deildarinnar, ákvað að gefa Love sæti Yao Ming í Vesturstrandarliðinu en Ming er meiddur og getur ekki spilað. Körfubolti 5.2.2011 15:28
Kidd afgreiddi Boston Það fóru tólf leikir fram í NBA-körfuboltanum í nótt og þar bar hæst góður útisigur Dallas á Boston Celtics. Jason Kidd skoraði sigurkörfuna þegar 2,5 sekúndur voru eftir af leiknum. Dallas var þá á 10-0 siglingu sem sökkti Celtics. Körfubolti 5.2.2011 10:57
Griffin fyrsti nýliðinn í Stjörnuleiknum í 8 ár - fjórir Boston-menn valdir Blake Griffin, nýliði Los Angeles Clippers, var valinn í Stjörnuleikinn í NBA-deildinni í gær líkt og Kevin Garnett, leikmaður Boston, sem um leið jafnaði met þeirra Jerry West, Shaquille O'Neal og Karl Malone með því að vera valinn í leikinn 14. árið í röð. Þjálfarar Austur- og Vesturdeildanna kusu um hvaða leikmenn fylla upp leikmannahópa Stjörnuliðanna en byrjunarlið Stjörnuliðanna voru valin af áhugafólki um NBA-deildina. Körfubolti 4.2.2011 16:15
NBA í nótt: LeBron með 51 stig í sigri á Orlando LeBron James fór mikinn þegar að lið hans, Miami Heat, vann sigur á grönnum sínum í Orlando Heat, 104-100. Körfubolti 4.2.2011 09:27
Dirk Nowitzki rauf 22.000 stiga múrinn í New York Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gær og þar bar 113-97 sigur Dallas gegn New York á útivelli hæst. Dirk Nowitzki skoraði 29 stig fyrir Dallas og Þjóðverjinn skoraði sitt 22.000 stig á ferlinum í leiknum og er hann í 24 leikmanna frá upphafi sem hafa náð þeim árangri. Jose Barea skoraði 22 stig og er þetta í sjötta sinn í röð þar sem Dallas vinnur í Madison Square Garden. Körfubolti 3.2.2011 07:18
Þríeykið hjá Lakers hrökk í gang gegn Houston Meistaralið LA Lakers batt enda á tveggja leikja taphrinu í NBA deildinni í gær með því að vinna Houston á heimavelli 114-106 í framlengdum leik. Lamar Odom fór á kostum í liði Lakers með 20 stig og 20 fráköst. Kobe Bryant var stigahæstur í liði Lakers með 32 stig og 11 fráköst. Pau Gasol skoraði 26 stig og tók 16 fráköst. Körfubolti 2.2.2011 08:18
LeBron James besti leikmaður vikunnar í þriðja sinn í vetur LeBron James hjá Miami Heat og Zach Randolph hjá Memphis Grizzlies voru valdir bestu leikmenn síðustu viku (24. til 30. janúar) í NBA-deildinni í körfubolta, James í Austurdeildinni og Randolph í Vesturdeildinni. Körfubolti 1.2.2011 15:57
Framkvæmdastjóri meistaraliðs Lakers ósáttur og íhugar breytingar Forráðamenn meistaraliðs LA Lakers í NBA deildinni í körfubolta eru allt annað en ánægðir með gengi liðsins að undanförnu. Eftir tapleikinn gegn Boston Celtics á dögunum sagði Mitch Kupchak framkvæmdastjóri liðsins að það kæmi vel til greina að gera breytingar á liðinu áður en lokað verður fyrir leikmannaskipti þann 19. febrúar. Körfubolti 1.2.2011 13:04
Breyttir tímar hjá Cleveland sem tapaði sínum 21. leik í röð LeBron James mætti gamla liði sínu Cleveland Cavaliers í gær í NBA deildinni á heimavelli Miami Heat. James skoraði 24 stig í 117-90 sigri liðsins en Dwayne Wade var stigahæstur með 34 stig. Cleveland tapaði sínum 21. leik í röð en liðið hefur aðeins unnið 8 leiki og tapað 39. Körfubolti 1.2.2011 08:57
Durant segir að Bosh sé ekki alvöru „nagli“ Kevin Durant stigahæsti leikmaður NBA deildarinnar er ekki þekktur fyrir að missa stjórn á skapi sínu en hann lenti í orðaskaki við Chris Bosh miðherja Miami Heat í gær þegar liðin áttust við. Durant og Bosh fengu báðir tæknivillu í kjölfarið en Durant skaut föstum skotum á Bosh í viðtölum eftir leikinn – sem telst vera fréttaefni því Durant hefur aldrei sagt slíkt áður. Körfubolti 31.1.2011 20:58
Larry Bird missti þolinmæðina og rak Jim O'Brien Larry Bird forseti NBA liðsins Indiana Pacers missti þolinmæðina gagnvart þjálfaranum Jim O'Brien í gær og Frank Vogel aðstoðarþjálfari liðsins mun stýra liðinu út leiktíðina. Körfubolti 31.1.2011 14:41
Boston sýndi styrk sinn gegn meistaraliði Lakers Fjölmargir spennandi leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gær þar sem að viðureign gömlu stórveldana, Boston Celtics og LA Lakers bar hæst. Meistaraliðið Lakers varð að játa sig sigrað á heimavelli í Los Angeles, 109-96, þrátt fyrir að Kobe Bryant hafi skorað 41 stig. Körfubolti 31.1.2011 08:46
Annað tap TCU í röð TCU tapaði sínum öðrum leik í röð í bandaríska háskólaboltanum í nótt, í þetta sinn fyrir Air Force-skólanum, 60-55. Körfubolti 30.1.2011 12:02