Ástin á götunni
291 292 293 294 295 296 297 298 299 … 334 ›
Þarf metnaðarfyllra starfsumhverfi Jóhannes Karl Guðjónsson, knattspyrnumaður hjá Leicester City, segist tilbúinn til þess að gefa kost á sér í landsliðið á nýjan leik. "Ég er tilbúinn til þess að gefa kost á mér á nýjan leik þegar metnaðarfyllra starfsumhverfi skapast." Sport 23.10.2005 15:02
Moyes hélt krísufund David Moyes, stjóri botnliðs Everton í ensku úrvalsdeildinni, hélt krísufund með leikmönnum sínum í kjölfar tapsins gegn Manchester City um helgina. Everton er í neðsta sæti deildarinnar með aðeins þrjú stig og hefur aðeins náð að skora eitt mark í leikjunum sjö sem það hefur spilað. Sport 23.10.2005 15:02
Gerrard vill gleyma Belfast Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að hann og félagar hans í enska landsliðinu vilji gera allt sem í þeirra valdi stendur til að gleyma óförunum gegn Norður-Írum í Belfast á dögunum og til þess verði þeir að eiga góðan leik gegn Austurríkismönnum um helgina. Sport 23.10.2005 15:02
James framlengir við Man. City Markvörðurinn David James hefur framlengt samning sinn við úrvalsdeildarlið Manchester City um eitt ár og verður því hjá félaginu til loka keppnistímabilsins 2006-2007. James er dottinn út úr myndinni hjá landsliðsþjálfaranum í bili, en Stuart Pearce hefur fulla trú á honum. Sport 23.10.2005 15:02
Bætt afkoma hjá Tottenham Úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspurs lagði fram ársreikninga sína í morgun og þar sýndi félagið fram á bætta afkomu frá árinu þar á undan. Eftir að 2,7 milljóna punda halli var á rekstri félagsins á árinu 2003-04, hefur það nú sýnt fram á 4,1 milljón punda hagnað á síðasta reikningsári. Sport 23.10.2005 15:02
Everton vill Gunnar Heiðar Stuðningsmannasíða enska úrvalsdeildarfélagsins Everton greindi frá því nú skömmu undir hádegið að félagið hafi hug á að fá markamaskínuna Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Gunnar Heiðar sem leikur með Halmstad í Svíþjóð hefur skorað alls 23 mörk í 34 leikjum fyrir sænska liðið á tímabilinu og hefur sú frammistaða vakið mikla athygli víðsvegar um Evrópu. Sport 23.10.2005 15:02
Cissé ósáttur hjá Liverpool Franski framherjinn Djibril Cisse hjá Liverpool segir að hann muni ekki sætta sig við að vera á varamannabekknum hjá liðinu í allan vetur og segist muni hugsa sér til hreyfings ef ástandið lagast ekki fljótlega. Sport 23.10.2005 15:02
Helena áfram með KR Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðinn þjálfari KR í Landsbankadeild kvenna. Helena, sem er KR-ingur í húð og hár tekur við liðinu af Írisi Björk Eysteinsdóttur en Helena hafði leyst hana af í sumar eftir að Íris Björk þurfti að fara í barneingnarfrí. Sport 23.10.2005 15:02
Best á batavegi Knattspyrnugoðið George Best er sagður á batavegi eftir að hafa lagst inn á sjúkrahús í London á dögunum, en er enn á gjörgæsludeild. Hann var lagður inn vegna flensueinkenna og fékk alvarlega sýkingu í nýru um helgina. Sport 23.10.2005 15:02
Dregið í UEFA bikarnum Í morgun var dregið í undanriðla í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu, þar sem Íslendingar verða í eldlínunni í vetur. Bolton og Middlesbrough eru fulltrúar Englendinga í keppninni. Sport 23.10.2005 15:02
Stór stund fyrir Daða "Ég hef þurft að svitna dálítið fyrir þessu landsliðssæti. Þetta hefur verið ótrúlegt ár. Fyrst Íslandsmeistaratitillinn, svo var ég valinn í lið ársins og svo landsliðssætið. Þetta er enn ein rósin í hnappagatið. Þetta verður auðvitað töluvert púsluspil gagnvart vinnunni og fjölskyldunni enda átta daga ferðalag framundan," sagði Daði sem vonast til þess að fá að spreyta sig í einhverjar mínútur í landsleiknum gegn Pólverjum Sport 23.10.2005 15:02
Bjarni til Noregs Valsmaðurinn Bjarni Ólafur Eiríksson fær tilboð í hendurnar í dag frá norska liðinu Odd Grenland en hann var til reynslu hjá liðinu í síðustu viku. Sport 23.10.2005 15:02
Gunnar Heiðar meiddur Markahrókurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði 14. mark sitt á leiktíðinni fyrir Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni sem steinlá fyrir Djurgården 6-1 í gærkvöld. Hann meiddist hins vegar illa á ökkla þegar hálftími var eftir af leiknum og þurfti að fara af velli og segist líklega vera út úr landsliðsmyndinni gegn Póllandi og Svíþjóð. Sport 23.10.2005 15:02
Fyrrum leikmaður Vals í fangelsi Englendingurinn Mark Ward sem lék með Valsmönnum í efstu deild karla árið 1998 var í dag dæmdur í átta ára fangelsi, eftir að fjögur kíló af kókaíni fundust í íbúð hans í Liverpool í vor. Sigurbjörn Hreiðarsson fyrirliði Vals sem lék með honum á sínum tíma með Hlíðarendaliðinu lýsir Ward sem algjörum toppmanni. Sport 23.10.2005 15:02
Owen fer aldrei aftur frá Englandi Framherjinn Michael Owen segir að hann muni aldrei leika annarsstaðar en á Englandi í framtíðinni, eftir að hann komst að því hvað það henti sér vel að leika í heimalandinu. Sport 23.10.2005 15:02
Keane hefur trú á arftaka sínum Fyrirliði Manchester United, Roy Keane, segist hafa fulla trú á Alan Smith sem arftaka sínum í varnarhlutverkinu á miðjunni og segir að það eina sem Smith þurfi sé tími og alvöru leikir til að ná góðum tökum á nýju stöðunni. Sport 23.10.2005 15:02
Atvik á Anfield í rannsókn Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að hefja rannsókn á því hvort hlutum var kastað inn á völlinn þegar Frank Lampard fagnaði marki sínu úr vítaspyrnu í leik Liverpool og Chelsea um helgina. Lampard fékk að líta gula spjaldið fyrir að storka áhorfendum Liverpool þegar hann fagnaði marki sínu úr vítaspyrnu, en honum verður ekki refsað frekar. Sport 23.10.2005 15:02
Butt fær lengra bann Miðjumaðurinn Nicky Butt hjá Birmingham hefur fengið leikbann sitt framlengt um einn leik fyrir að bölva dómara í leik gegn Portsmouth þann 17 september sl. Butt mun því missa af grannaslag Birmingham og Aston Villa þann 16 október, en lið Birmingham má illa við því. Sport 23.10.2005 15:02
Synd að Ívar sé ekki í hópnum Brynjar Björn Gunnarsson, hetja Reading í uppgjöri efstu liðanna í ensku fyrstu deildinni, segir að samherji sinn Ívar Ingimarsson eigi heima í landsliðinu. Sport 23.10.2005 15:02
Real Madrid þénar mest Spænska stórveldið Real Madrid hefur velt Manchester United af stalli og er nú það félag í heiminum sem þénar mestar tekjur, ef marka má nýjustu tölur frá spænska liðinu. Sport 23.10.2005 15:02
Nistelrooy fer ekki frá United Umboðsmaður Ruud van Nistelrooy hjá Manchester United hefur gefið það út að hollenski framherjinn sé ekki á leið frá liðinu eins og fram hefur komið í fréttum undanfarna daga, en Nistelrooy hefur verið orðaður við Real Madrid á Spáni. Sport 23.10.2005 15:01
Ísland U-19 tapaði fyrir Búlgaríu Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum yngri en 19 ára, tapaði í dag fyrir Búlgaríu 1-0 í undankeppni EM. Markið kom á 50. mínútu leiksins úr vítaspyrnu, en einn leikmaður úr hvoru liði fékk að líta rauða spjaldið í leiknum. Sport 23.10.2005 15:01
Beckham og Rooney sættust Ensku landsliðsmennirnir Wayne Rooney og David Beckham, sem rifust heiftarlega á vellinum í tapi Englendinga fyrir Norður-Írum á dögunum, hafa nú náð sáttum á ný. Rooney brá sér yfir til Spánar í gærkvöld ásamt konu sinni og snæddi kvöldverð með Beckham hjónunum. Sport 23.10.2005 15:01
Stelpurnar töpuðu fyrir Rússum U-19 ára landslið kvenna tapaði lokaleik sínum í riðlakeppninni í undankeppni EM fyrir Rússum 5-1 á laugardaginn, en liðið er engu að síður komið áfram í milliriðla. Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði eina mark íslenska liðsins, sem hafnaði í öðru sæti riðils síns. Sport 23.10.2005 15:01
Sammi vill mæta Roma "Stóri-Sam" Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, segist vonast eftir að mæta einhverjum af stóru liðunum í Evrópu þegar dregið verður í riðla í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu á morgun. Sport 23.10.2005 15:01
Enski landsliðshópurinn tilkynntur Sven-Göran Eriksson hefur tilkynnt 24 manna landsliðshóp Englendinga sem mætir Austurríki og Pólverjum dagana 8. og 12. október næstkomandi. Athygli vekur að framherji Liverpool, Peter Crouch er kominn inn í hópinn á ný, en Danny Murphy frá Charlton hlýtur ekki náð fyrir augum Svíans, þrátt fyrir að leika mjög vel með liði sínu undanfarið. Sport 23.10.2005 15:01
Mourhinho heimtar virðingu Jose Mourinho segir að það sé kominn tími til að fólk fari að virða lið Chelsea, eftir að það tók Liverpool í kennslustund á Anfield í gær, en bendir á að nóg sé eftir af tímabilinu á Englandi þó Chelsea gangi vel í byrjun. Sport 23.10.2005 15:01
Carsley aftur í aðgerð Það blæs ekki byrlega fyrir botnlið Everton þessa dagana og í dag bárust þær fréttir að miðjumaðurinn sterki Lee Carsley hafi farið í aðra aðgerð á hné og verði því frá í lágmark sex vikur til viðbótar. Sport 23.10.2005 15:01
Þrír 19 ára í U-21 árs liðið Eyjólfur Sverrisson hefur valið þrjá leikmenn úr U-19 ára landsliði Íslands í U-21 árs hóp sinn sem mætir Svíum í undankeppni EM í Svíþjóð þann 11. október. Þetta eru þeir Theodór Elmar Bjarnason, Bjarni Þór Viðarsson og Rúrik Gíslason. Sport 23.10.2005 15:01
Best á gjörgæslu Knattspyrnugoðið George Best hefur verið lagður inn á gjörgæslu á Cromwell sjúkrahúsinu í London, samkvæmt fréttum frá BBC. Ekki liggur ljóst fyrir hvað amar að Best, en hann lét græða í sig lifur fyrir þremur árum og hefur verið nokkuð heilsutæpur á síðustu árum. Sport 23.10.2005 15:01