
Sinfóníuhljómsveit Íslands

Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri
Guðni Tómasson, fráfarandi menningarritstjóri Ríkisútvarpsins, hefur verið verið ráðinn framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Ekkert mjálm í Unu Torfa og Sinfó
Jónas Sen skrifar um tónleika Unu Torfadóttur og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg í Hörpu fimmtudaginn 16. maí.

Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni
Kanadíski hljómsveitarstjórinn og söngkonan Barbara Hannigan hefur verið ráðin aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún mun taka við stöðunni í ágúst 2026 og gegna henni í þrjú starfsár.

Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín
Eina langspilssveit landsins, sem vitað er um er skipuð um tuttugu nemendum Flóaskóla, sem smíða að auki öll sín hljóðfæri. Sveitin gerir það nú gott í Hörpu þar sem hún spilar á nokkrum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Hæstiréttur skoðar ekki ellefu ára gamalt slys í Sinfó
Hæstiréttur mun ekki taka fyrir skaðabótamál sem sviðsmaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands höfðaði gegn hljómsveitinni og tónlistarhúsinu Hörpu vegna vinnuslyss.

Léku með fyrrverandi Ísrealshermanni en földu uppruna hans
Ísraelskur fiðluleikari lék með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Eldborg í Hörpu í fyrradag. Upplýsingar um uppruna hans voru fjarlægðar í framhaldi af því að kvartanir bárust.

Sagt upp hjá Sinfó vegna orðsporsáhættu
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið dæmd til að greiða hljóðfæraleikara í sveitinni 3,5 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar árið 2022. Uppsögnin byggði á því að hann hefði verið borinn sökum um kynferðislega misnotkun og orðspor hljómsveitarinnar væri í hættu. Fimm ár voru þá liðin frá því rannsókn málsins var felld niður hjá héraðs- og ríkissaksóknara.

Ásgeir Trausti og fíllinn í postulínsbúðinni
Ásgeir Trausti kom fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Anthony Weeden á Airwaves í Eldborginni í Hörpu á föstudagskvöldið. Það var svona og svona.

Hljóðfæraleikarar landa kjarasamningi við ríkið
Samningar hafa náðst í kjaradeilu hljóðfæraleikara Sinfoníuhljómsveitar Íslands við ríkið. Skrifað var undir samninga hjá ríkissáttasemjara á sjöunda tímanum í kvöld.

Það taki enga stund að hola menningarstofnanir að innan sem tók áratugi að byggja
Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari, tekur upp hanskann fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands sem stendur í kjarabaráttu. Hann segir að það yrði hræðilegt ef hljómsveitin færi í verkfall sem nú stefnir í. Víkingur biðlar til stjórnvalda að meta hljóðfæraleikarana að verðleikum. Það taki áratugi að byggja upp menningarstofnanir en stuttan tíma að hola þær að innan.

Nokkur orð um Sinfó
Í októberhefti BBC Music Magazine er fjallað um eftirtektarverða tónleika sem framundan eru víðs vegar um heiminn. Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) fær sérstaka umfjöllun fyrir glæsilega vetrardagskrá „þrátt fyrir að starfa í fámennu samfélagi“ eins og það er orðað.

Vísbendingar um ofbeldi innan Sinfóníuhljómsveitarinnar
Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar um starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands er að finna vísbendingar um einelti og ofbeldi innan sveitarinnar.

Segir ásakanirnar blöndu af rangfærslum og ósannindum
Árni Heimir Ingólfsson sver af sér allar ásakanir Bjarna Frímanns Bjarnasonar í hans garð. Í september í fyrra steig Bjarni Frímann fram og sakaði Árna Heimi um að hafa brotið á honum kynferðislega þegar hann var sautján ára gamall.

Ætla að bregða nýju ljósi á Sinfó
Hlaðvarpið Fílalag, með þeim Bergi Ebba og Snorra Helgassyni, og Sinfóníuhljómsveit Íslands munu sameina krafta sína í Eldborgarsal Hörpu í haust. Bergur Ebbi segir það mikinn heiður að fá að fíla Sinfó og ætla þeir félagar að bregða nýju ljósi á hljómsveitina.

Lára Sóley áfram framkvæmdastjóri Sinfó
Stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur ákveðið að endurráða Láru Sóleyju Jóhannsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar. Hún hefur gengt stöðu framkvæmdastjóra frá sumri 2019 en ráðið er í stöðuna til fjögurra ára í senn.

Nýr staðarhljómsveitarstjóri Sinfó er 22 ára
Bresk-finnski hljómsveitarstjórinn Ross Jamie Collins hefur verið ráðinn staðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands starfsárið 2023-24. Collins verður 22 ára á þessu ári.

Garðar Cortes er látinn
Garðar Cortes, óperusöngvari með meiru, andaðist að morgni sunnudagsins 14. maí. Með honum er genginn einhver allra áhrifamesti einstaklingur íslensks tónlistarlífs undanfarinna áratuga.

Níu þúsund sóttu tónleika Sinfóníunnar í Bretlandi
Sinfóníuhljómsveit Íslands er komin aftur til landsins eftir sjö tónleika ferð um Bretland. Fékk sveitin glimrandi góða dóma í blöðunum ytra.

Páll Pampichler Pálsson er látinn
Páll Pampichler Pálsson hljómsveitarstjóri og tónskáld er látinn. Hann lést í heimaborg sinni í Graz í Austurríki þann 10. febrúar.

Eva Ollikainen áfram aðalhljómsveitarstjóri Sinfó
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur endurnýjað samning sinn við Evu Ollikainen sem gegnt hefur stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda síðastliðin þrjú ár. Samningurinn hefur verið framlengdur til loka starfsársins 2025-26.

Tólf hundruð eldri borgarar mættu á generalprufu
Árlegu Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hófu göngu sína í kvöld en fjórir tónleikar fara fram þetta árið. Tónleikarnir hafa verið haldnir síðan árið 1972. Hefð hefur skapast fyrir því að bjóða eldri borgurum á generalprufu tónleikanna.

Harpa rýmd vegna bilunar á úðunarkerfi
Harpa var rýmd nú rétt í þessu vegna bilunar á úðunarkerfi. Gestir á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar þurftu að yfirgefa Eldborgarsalinn.

Færsla Bjarna Frímanns fjarlægð af Facebook
Starfsmenn Facebook fjarlægðu færslu Bjarna Frímanns Bjarnasonar fiðluleikara og hljómsveitarstjóra af Facebook. Í færslunni, sem vakti mikla athygla og fór í mikla dreifingu, sakaði Bjarni Frímann fyrrverandi tónlistarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands um kynferðisbrot. Bjarni Frímann hefur kallað eftir skýringum frá Facebook.

Sinfónían fær óháðan aðila til að skoða mál Árna Heimis
Stjórn og framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa ákveðið að fela óháðum fagaðila að skoða mál er varðar meint kynferðisbrot Árna Heimis Ingólfssonar gegn Bjarna Frímanni Bjarnasyni.

Segir trausta verkferla innan Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Framkvæmdastjóri Sinfóníu Íslands segir mjög trausta ferla og viðbragðsáætlanir vera innan Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Fyrrverandi hljómsveitarstjóri segir stjórnendur ekkert hafa aðhafst þegar hann greindi frá kynferðisofbeldi af hálfu lykilmanns hjá Sinfóníunni.

Árni Heimir biðst afsökunar á ósæmilegri hegðun
Árni Heimir Ingólfsson, fyrrverandi tónlistarstjóri Sinfóníu Íslands segist hafa verið í mikill sjálfsvinnu undanfarin tvö ár og að hann biðji þá sem hann hefur hegðað sér ósæmilega gegn afsökunar.

Segir Árna Heimi hafa brotið á honum kynferðislega
Bjarni Frímann Bjarnason, fiðluleikari og hljómsveitarstjóri, greindi frá því í dag að Árni Heimir Ingólfsson, fyrrverandi tónlistarstjóri Sinfóníu Íslands, hefði brotið á honum kynferðislega þegar hann var sautján ára gamall og Árni Heimir 35 ára.

Eplið fellur ekki langt frá eikinni hjá Sinfóníuhljómsveitinni
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld munu fimm pör foreldra og barna spila saman ásamt fleirum. Svava Bernharðsdóttir víóluleikari segir Sinfóníuhljómsveitina vera stóra fjölskyldu.

Anna Guðný Guðmundsdóttir er látin
Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari er látin 64 ára að aldri eftir erfiða en aðdáunarverða baráttu við veikindi. Anna Guðný var lykilmaður í klassísku tónlistarlífi landsins áratugum saman og af mörgum talin besti meðleikari landsins.

Sigurður Hannesson nýr stjórnarformaður Sinfóníunnar
Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins hefur tekið við sem stjórnarformaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands af Sigurbirni Þorkelssyni, sem hefur sinnt stöðunni síðan 2014.