Erlent
205 206 207 208 209 210 211 212 213 … 334 ›
Biðja fólk um að hætta að sleikja körtur Landverðir í Bandaríkjunum biðja almenning um að hætta að sleikja körtur. Fólk hefur í auknum mæli sleikt tiltekna tegund froskdýra til að komast í vímu en yfirvöld segja athæfið hættulegt. Erlent 6.11.2022 21:41
Nítján létust í flugslysinu Að minnsta kosti nítján létust í flugslysi í Tansaníu í dag. Lítil farþegaflugvél brotlenti á Viktoríuvatni eftir misheppnaða lendingartilraun á flugvelli við bakka vatnsins. Leit að farþegum stendur enn yfir. Erlent 6.11.2022 21:03
Rússar þykist fara frá Kherson til að lokka hermenn í gildru Yfirvöld í Úkraínu segja að Rússar beiti blekkingum í Kherson með því að þykjast hörfa frá borginni. Með blekkingunni ætli þeir að lokka hermenn í gildru og sitja fyrir þeim. Erlent 6.11.2022 20:15
Þjóðverjar ætla að leyfa kannabis í afþreyingarskyni Neysla og sala kannabis í afþreyingarskyni verður gefin alveg frjáls í Þýskalandi, verði lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar samþykkt í þýska þinginu. Heilbrigðisráðherra segir úrelta löggjöf síðustu áratuga hafa beðið skipbrot og að lögleiðing efnisins muni skila milljörðum evra í ríkissjóð. Erlent 6.11.2022 16:00
Þremur forsetum trillað út á lokametrum kosningabaráttunnar Þrír forsetar Bandaríkjanna tóku þátt í framboðsfundum á lokametrum kosningabaráttunar í lykilríkinu Pennsylvaníu í gær. Kosið verður til Bandaríkjaþings og fjölda ríkisembætta á þriðjudag. Erlent 6.11.2022 11:59
Brotlenti í stærsta vatni Afríku Lítil farþegaflugvél brotlenti á Viktoríuvatni í Tansaníu eftir misheppnaða lendingartilraun á flugvelli við bakka vatnsins. Björgunaraðgerðir standa nú yfir vegna flugslyss í Viktoríuvatni í Tansaníu en ekki hefur verið greint frá neinum dauðsföllum. Erlent 6.11.2022 11:08
Grænlendingar opna fyrsta hluta nýs alþjóðaflugvallar Hluti nýju flugbrautarinnar í Nuuk var opnaður flugumferð í vikunni. Þetta er fyrsti stóri áfanginn sem næst í þeirri miklu flugvallagerð sem Grænlendingar hófu fyrir þremur árum en hún er mesta innviðauppbygging í sögu þessa næsta nágrannalands Íslendinga. Erlent 6.11.2022 10:10
Varð fjórum að bana eftir slagsmál í brúðkaupi Ökumaður varð þremur að bana fyrir utan veitingastað í Madríd, höfuðborgar Spánar þar sem brúðkaupsveisla fór fram. 65 ára gömul kona karlmenn á aldrinum og 60, 37 og 17 létu lífið og fjórir til viðbótar eru alvarlega særðir. Erlent 6.11.2022 10:08
Villt dýr hrynja niður í sögulegum þurrki í Kenía Hundruð sebrahesta og fíla eru á meðal fleiri en þúsund villtra skepna sem hafa drepist í langvarandi þurrki í Kenía. Óttast er að þurrkurinn eigi eftir að leiða til hörmunga fyrir menn í Eþiópíu, Kenía og Sómalíu. Erlent 6.11.2022 09:31
Stöðvuðu ferðir einkaþotna á Schiphol-flugvelli Hundruð loftslagsaðgerðarsinna réðust inn á stæði fyrir einkaflugvélar á Schiphol-flugvelli í Amsterdam og komu í veg fyrir að þær gætu farið í loftið í nokkrar klukkustundur í gær. Herlögregla var kvödd til og handtók fleiri en hundrað manns. Erlent 6.11.2022 08:43
Yfirvöld í Kína hafa engan áhuga á afléttingum Kínversk yfirvöld hafa ekki áhuga á því að aflétta samkomutakmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins í bráð. Sýnatökur, sóttkví og lokanir eru enn daglegt brauð í Kína. Erlent 5.11.2022 23:34
Neyðaróp bárust klukkutímum fyrir hörmungarnar „Einhver á eftir að láta lífið,“ voru skilaboð sem bárust lögreglunni í Seúl í Suður-Kóreu mörgum klukkutímum áður en 156 létu lífið í troðningi á hrekkjavökuhátíð síðustu helgi. Fleiri símtöl bárust lögreglu sem loks gaf undan og sendi nokkra lögreglumenn á vettvang. En þá var það orðið of seint. Erlent 5.11.2022 23:01
Læknar skilja ekki af hverju hún er enn á lífi; hefur lifað af tólf meðferðir vegna krabbameinsæxla Spænsk kona sem hefur undirgengist meðferðir og skurðaðgerðir 12 sinnum vegna krabbameinsæxla, þar af hafa 5 verið illkynja æxli, hefur glætt vonir sérfræðinga um að verulega verði hægt að auka batahorfur og bæta meðferð krabbameinssjúklinga á næstu árum. Þeir segja óskiljanlegt að konan skuli enn vera á lífi, en hún er rétt rúmlega fertug. Erlent 5.11.2022 14:01
Kosningateymi Twitter rekið á einu bretti rétt fyrir kosningar Starfsmenn samfélagsmiðilsins Twitter sem sáu um að verjast upplýsingafalsi í kringum kosningar voru á meðal þeirra sem voru sagt upp í umfangsmikilli hópuppsögn í gær. Aðeins þrír dagar eru nú til þýðingarmikilla þingkosninga í Bandaríkjunum. Erlent 5.11.2022 12:22
Svíar hafna Kúrdum til að friðþægja Tyrki Sænska ríkisstjórnin ætlar að láta af stuðningi við vopnaða sveit Kúrda í Sýrlandi og stjórnmálaflokk sem tengist henni til þess að friðþægja Tyrki. Recep Erdogan Tyrklandsforseti hefur sett sig upp á móti aðild Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu vegna stuðnings þeirra við Kúrda. Erlent 5.11.2022 09:54
Gangast loks við því að útvega Rússum dróna Utanríkisráðherra Írans viðurkenndi í fyrsta skipti í dag að ríkisstjórn hans hefði útvegað Rússum dróna sem hafa verið notaðir í sprengjuárásir í Úkraínu. Hann fullyrðir að drónarnir hafi verið afhentir áður en innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 5.11.2022 09:10
Öskraði „farðu aftur til Afríku“ á annan þingmann Þingmaður á franska þinginu hefur verið settur í fimmtán daga bann fyrir að hafa öskrað „farðu aftur til Afríku“ á þingmann úr öðrum flokki. Hann segist ekkert hafa gert rangt og vill meina að orðin hafi beinst að stöðu flóttafólks. Erlent 4.11.2022 17:26
Bein útsending: Reyna að grípa eldflaug með þyrlu Starfsmenn fyrirtækisins Rocket Lab ætla í dag að reyna að grípa eldflaug með þyrlu. Eldflauginni verður skotið frá Nýja-Sjálandi og á hún að koma smáum gervihnetti á braut um jörðu fyrir sænskt fyrirtæki. Erlent 4.11.2022 16:32
Sanna braut engar reglur með djamminu Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, braut engar reglur og braut ekki gegn skyldum sínum með því að fara í samkvæmi. Myndbönd af forsætisráðherranum í dansa og syngja í samkvæmum var lekið á netið í sumar og þurfti hún að fara í fíkniefnapróf vegna ásakana um neyslu fíkniefna frá andstæðingum sínum í þinginu. Erlent 4.11.2022 15:22
Þrjár ISIS-konur ákærðar í Danmörku Yfirvöld í Danmörku hafa ákært þrjár konur fyrir að ganga til liðs við Íslamska ríkið. Konurnar fóru til Sýrlands á árum áður og giftust þar vígamönnum hryðjuverkasamtakanna. Eftir fall Kalífadæmisins voru konurnar og fjórtán börn þeirra í Roj-búðum í norðausturhluta Sýrlands. Erlent 4.11.2022 14:40
Dómari segir að vakta eigi fyrirtæki Trumps Óháður aðili verður fenginn til að vakta fyrirtæki Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Dómari í New York-ríki komst að þeirri niðurstöðu í dag í tengslum við lögsókn ríkissaksóknara New York gegn fyrirtækinu. Erlent 4.11.2022 12:14
Þjóðgarðsverðir fá leyfi til að skjóta á úlfa með málningarkúlum Þjóðgarðsverðir í Arnheim í Hollandi hafa fengið heimild til að skjóta á úlfa með málningarkúlum (e. paint ball) í þeim tilgangi að gera dýrin fráhverf mannfólkinu. Úlfar í Hoge Veluwe-þjóðgarðinum eru sagðir orðnir hættulega óhræddir við fólk, þannig að mönnum gæti stafað ógn af þeim. Erlent 4.11.2022 11:24
Kölluðu ódæðin í Bucha „hreinsanir“: „Ég er búinn að drepa svo mikið af borgurum“ Þegar rússneskir hermenn tóku yfir bæinn Bucha, norður af Kænugarði, snemma eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar, fóru hermenn um bæinn með lista. Á þeim listum, sem voru frá leyniþjónustum Rússlands, voru nöfn fólks sem talið var geta ógnað Rússum. Erlent 4.11.2022 10:53
Barnshafandi kona stungin til bana í Danmörku Barnhafandi kona var stungin til bana í Holbæk á Sjálandi í Danmörku í gærkvöldi. Lögregla á Sjálandi segir að konan hafi verið 37 ára og margsinnis stungin með hníf. Fram kemur að barn konunnar sé enn á lífi. Erlent 4.11.2022 07:43
Trump segir „mjög, mjög, mjög líklegt“ að hann bjóði sig aftur fram Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna gaf það sterklega í ljós í ræðu í gærkvöldi að hann hyggi á endurkomu í næstu forsetakosningum. Erlent 4.11.2022 07:38
Á fimmtu milljón án rafmagns í Úkraínu Volodómír Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa um að beita "orkuhryðjuverkum" í stríðsrekstri sínum í Úkraínu. Erlent 4.11.2022 07:33
Segir kjarnorkuárás jafngilda endalokum stjórnartíðar Kim Lloyd Austin, varnarmálráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að kjarnorkuárás Norður-Kóreu á Bandaríkin eða bandamenn þeirra myndi binda enda á stjórnartíð Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu. Erlent 4.11.2022 07:32
Starfsmenn Twitter fá tilkynningu um örlög sín nú í morgunsárið Athafnamaðurinn og frumkvöðullinn Elon Musk, sem eignaðist Twitter á dögunum og skipaði sjálfan sig forstjóra, er sagður munu hefja umfangsmiklar uppsagnir meðal starfsmanna í dag. Erlent 4.11.2022 07:05
Tilraun til vitundavakningar endaði með fangelsisdómi Tveir menn hafa nú verið dæmdir til tveggja mánaða fangelsisvistar fyrir tilraun sína til þess að skemma málverkið „Stúlkan með perlueyrnalokkinn“ eftir Vermeer í nafni aðgerða í umhverfismálum. Erlent 3.11.2022 19:56
Enn streyma eldflaugarnar frá Kóreuskaganum Minnst sex eldflaugum var skotið á loft frá Norður-Kóreu í dag og þar á meðal einni langdrægri. Það er í kjölfar þess að rúmum tuttugu eldflaugum var skotið á loft í gær. Erlent 3.11.2022 16:45
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent