Innlendar

Fréttamynd

Gekk illa hjá krökkunum

Í dag kepptu Íslendingar í tveimur greinum á vetrarhátið Ólympíuæskunnar, stórsvigi pilta og sprettgöngu pilta. Stúlkurnar í hópnum nýttu hins vegar tímann til æfinga, enda keppni á morgun í listhlaupi og svigi stúlkna.

Sport
Fréttamynd

Keppni hafin á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar

Í dag hófst keppnin á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Liberec í Tékklandi. Í fyrsta sinn á ólympískum leikum átti Ísland keppanda í skautagrein, eða listhlaupi á skautum. Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir keppti í stutta prógramminu sem er fyrri hluti keppninnar hjá henni. Fékk hún 24,90 stig fyrir þennan hluta og er í 28. sæti af 30 keppendum.

Sport
Fréttamynd

Sölvi og Fjóla Signý Íslandsmeistarar í fjölþrautum

Sölvi Guðmundsson úr Breiðabliki og Fjóla Signý Hannesdóttir úr HSK urðu í dag Íslandsmeistarar í fjölþrautum á Meistaramótinu í Laugardalshöll. Sölvi var sá eini sem kláraði sjöþrautina hjá körlunum en Fjóla Signý vann fimmtarþrautina með 537 stigum.

Sport
Fréttamynd

Einar Daði efstur eftir fyrri daginn

ÍR-ingurinn Einar Daði Lárusson er í fyrsta sæti í sjöþraut eftir fyrri daginn á Meistaramóti Íslands í fjölþrautum innanhúss. Einar Daði hefur fengið 3137 stig í fyrstu þremur greinunum og er með 561 stigs forskot á Blikann Sölva Guðmundsson.

Sport
Fréttamynd

Ásgeir, Jórunn og Guðmundur Helgi meistarar á Landsmóti STÍ

Ásgeir Sigurgeirsson, Jórunn Harðardóttir og Guðmundur Helgi Christensen, öll úr Skotfélagi Reykjavíkur, urðu í gær meistrarar á Landsmóti Skotíþróttasambands Íslands sem fram fór í Egilshöll í húsakynnum Skotfélags Reykjavíkur. Jórunn vann tvöfaldan sigur í kvennaflokki.

Sport
Fréttamynd

Byr blæs í bakið á Jakobi Jóhanni

Byr og Jakob Jóhann Sveinsson sundmaður skrifuðu í gær undir samstarfssamning til 18 mánaða en Jakob stefnir að sínum fjórðu ólympíuleikum í London á næsta ári. Jakob æfir hjá Sundfélaginu Ægi í Reykjavík og er bringusund hans aðal keppnisgrein. Hann hefur unnið fjölda móta hérlendis og var meðal annars kosinn sundmaður ársins hjá SSÍ.

Sport
Fréttamynd

Vilhjálmur nældi í gull í Svíþjóð

Taekwondo-kappinn Vilhjálmur Guðmundsson, sem keppir fyrir Fram, gerði sér lítið fyrir um helgina og vann til gullverðlauna á sterku A-móti í evrópsku mótaröðinni í mínus 68 kg flokki.

Sport
Fréttamynd

JR bikarmeistari á afmælismóti Júdósambandsins

Afmælismót Júdósambands Íslands fór fram í gær og voru keppendur rúmlega 50 og komu þeir frá öllum aðildarfélögum JSÍ. Júdófélag Reykjavíkur fagnaði sigri í bikarkeppni karla sem fram fór strax að loknu afmælismótinu .

Sport
Fréttamynd

Erlingur fékk heiðursverðlaun AIPS

AIPS, sem eru alþjóðasamtök íþróttafréttamanna, veittu í gær sundþjálfaranum Erlingi Jóhannssyni heiðursviðurkenningu en Erlingur lést á síðasta ári. Erlingur var einn af frumkvöðlum í sundþjálfun fatlaðra á Íslandi og fékk hann AIPS Power of Sports Awards verðlaunin á hátíðarsamkomu AIPS í Sviss í gær.

Sport
Fréttamynd

Helga Margrét vann fjölþrautarmót í Svíþjóð

Ármenningurinn Helga Margrét Þorsteinsdóttir sigraði örugglega í dag í fimmtarþraut á stjóru fjölþrautarmóti í Växjö í Svíþjóð þar sem hún hefur verið við æfingar hjá nýja þjálfara sínum Agne Bergvall.

Sport
Fréttamynd

Kristinn Torfason setti Íslandsmet í þrístökki

Kristinn Torfason úr FH bætti Íslandsmetið í þrístökki karla innanhúss þegar hann stökk 15,27 metra á Stórmóti ÍR í frjálsum sem fór fram í fimmtánda sinn í Laugardalshöllinni um helgina. Stórmót ÍR er eins og undanfarin ár það stærsta sem haldið í frjálsíþróttum innanhúss ár hvert á Íslandi.

Sport
Fréttamynd

ÍSÍ úthlutar rúmlega 55 milljónum til afreksstarfs

Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti í dag tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ og Styrktarsjóðs ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna fyrir árið 2011.Styrkveitingar ÍSÍ að þessu sinni nema samtals rúmlega 55 milljónum króna en úthlutað er rúmlega 45 milljónum króna úr Afrekssjóði ÍSÍ og 10 milljónir króna úr Sjóði ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna.

Sport
Fréttamynd

Árið hans Alexanders í myndum

Handboltamaðurinn Alexander Petersson var í kvöld valinn Íþróttamaður ársins en hann átti frábært ár með íslenska landsliðinu og fór fyrir spútnikliði Füchse Berlin í þýsku úrvalsdeildinni.

Handbolti
Fréttamynd

Þessir fengu atkvæði í kjörinu

Kosningin á íþróttamanni ársins var afar jöfn að þessu sinni og hefur ekki verið eins jöfn í áraraðir. Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður var aðeins 24 stigum á eftir Alexander Peterssyni.

Sport
Fréttamynd

Alexander Petersson kjörinn íþróttamaður ársins

Handknattleiksmaðurinn Alexander Petersson var í kvöld kjörinn íþróttamaður ársins 2010. Kjörið er sögulegt að því leyti að Alexander er fyrsti maðurinn af erlendu bergi brotinn til þess að hljóta nafnbótina. Hann er fæddur í Lettlandi árið 1980 en hefur verið íslenskur ríkisborgari síðan 2004.

Handbolti
Fréttamynd

Alfreð og Íris Mist best í Kópavogi

Alfreð Finnbogason, knattspyrnumaður úr Breiðabliki, og Íris Mist Magnúsdóttir, fimleikakona úr Gerplu, voru í kvöld kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2010.

Sport
Fréttamynd

Hápunktarnir á íþróttaárinu 2011

Framundan er nýtt íþróttaár og því vel við hæfi að skoða það sem er framundan í alþjóðlegu íþróttalífi á nýju ári. Íslenskt íþróttafólk nær vonandi að halda upp heiðri þjóðarinnar á einhverjum af þessum mótum.

Sport
Fréttamynd

Kári Steinn með Íslandsmet í 5000 metra hlaupi á Áramóti Fjölnis

Blikinn Kári Steinn Karlsson setti nýtt Íslandsmet innanhúss í 5000 metra hlaupi á fjölmennu Áramóti Fjölnis sem fór fram í gærkvöldi. Kári Steinn bætti tveggja ára gamalt met Blikans Stefáns Guðmundssonar um rúmar 27 sekúndur. Þetta kemur fram á heimasíðu Frjálsiþróttasambandsins.

Sport
Fréttamynd

Framar mínum væntingum

HM í sundi í 25 m laug lauk í Dubai í gær en þrír íslenskir sundmenn tóku þátt í mótinu. Hrafnhildur Lúthersdóttir, SH, náði glæsilegum árangri í sínum greinum og setti til að mynda fjögur Íslandsmet á mótinu.

Sport