Vill ekki leyfa sveitarfélögum að rukka ökumenn á nagladekkjum Samgönguráðherra segir ekki standa til að veita sveitarfélögum heimild til að hefja gjaldtöku á þá sem nota nagladekk líkt og Umhverfisstofnun vill. Skiptar skoðanir eru á hugmyndum um gjaldtöku og segir ráðherra að gæta þurfi hófs í viðbrögðum. Innlent 26. október 2022 20:00
Styrkur metans aldrei aukist eins mikið frá upphafi mælinga Hlutfall gróðurhúsalofttegundarinnar metans í andrúmslofti jarðar hefur aldrei aukist jafna mikið og í fyrra frá því að mælingar hófust. Styrkur þriggja helstu gróðurhúsalofttegundanna í lofthjúpnum náði methæðum árið 2021. Erlent 26. október 2022 15:01
Firra að „nagladekkjalöggur“ ætli að skattleggja sjálfsögð öryggistæki Bæjarstjóri Ölfuss segir hugmyndir um að sveitarfélög fái heimild til að leggja gjald á notendur nagladekkja fráleitar. Hann segir nagladekk öryggisatriði og því sé firra að leggja öryggisskatt á íbúa utan höfuðborgarsvæðisins. Hann hefur enga trú á því að hugmyndirnar verði að veruleika. Innlent 26. október 2022 11:57
Telja keisaramörgæsina nú í útrýmingarhættu Bandarísk stjórnvöld settu keisaramörgæsina á lista yfir dýrategundir sem eru taldar í hættu á útrýmingu í gær. Hnattræn hlýnun og bráðnun hafíss við Suðurskautslandið er talin ógna þessari stærstu mörgæsartegund jarðar. Erlent 26. október 2022 09:10
Stefnir í tveggja og hálfrar gráðu hlýnun á meðan ríki draga lappirnar Útlit er fyrir að hnattræn hlýnun nái tveimur og hálfri gráðu fyrir lok aldarinnar ef ríki heims auka ekki metnað sinn í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það er heilli gráðu meira en stefnt er að með Parísarsamkomulaginu til þess að forðast verstu afleiðingar loftslagsbreytinga. Erlent 26. október 2022 08:42
Köstuðu kartöflumús á málverk Monet Franski listmálarinn Claude Monet er orðinn nýjasta viðfangsefni loftslagsaðgerðasinna en þýskir aktívistar köstuðu kartöflumús á verk eftir málarann á Potsdam safninu í Berlín í gær. Þetta er annað klassíska málverkið sem verður fyrir barðinu á matvælamótmælum á stuttum tíma. Erlent 24. október 2022 06:43
Hvítabirnir hörfa norðar vegna þynningar á norðurskautsísnum Hvítabirnir á Norðuríshafinu sækja sífellt norðar vegna þess hvað ísinn sunnar á hafinu þynnist hratt. Einn vísindamanna MOSAIC leiðangursins, sem lét skip sitt reka í eitt ár í gegnum ísbreiðuna, segir enn mögulegt að snúa þróuninni við en til þess hafi mannkynið skamman tíma. Innlent 23. október 2022 20:04
Búast við hlutfallslega lítilli aukningu í losun gróðurhúsalofttegunda Alþjóðaorkumálastofnunin (IEA) spáir því að losun mannkynsins á gróðurhúsalofttegundumvegna bruna á jarðefnaeldsneyti aukist um innan við eitt prósent á þessu ári í samanburði við síðasta ár. Það megi þakka uppgangi endurnýjanlegra orkugjafa og rafknúinna bifreiða. Erlent 21. október 2022 15:23
Áhersla á sjálfbærni í nýrri leigu og fagverslun BYKO BYKO Leiga opnaði nýverið útibú og verslun að Selhellu í Hafnarfirði sérstaklega hugsað fyrir fagaðila í byggingageiranum. Með þessu færist þungi starfseminnar í Hafnarfjörð og þar býðst viðskiptavinum mikið úrval af tækjum og búnaði til byggingaframkvæmda, bæði til leigu og kaups. Samstarf 20. október 2022 13:16
Setjum samdrátt samfélagslosunar í forgang Eftirspurn eftir grænni orku hefur aldrei verið meiri og mikið er rætt um að það vanti meiri græna orku hér á landi. En fyrir hvað vantar okkur orkuna? Skoðun 20. október 2022 11:01
Dráttarvélamótmæli gegn ropskatti á búfénað Nýsjálenskir bændur óku fylktu liði á dráttarvélum sínum um götur borga og bæja víðsvegar um landið til þess að mótmæla áformum ríkisstjórnarinnar um að leggja skatt á losun búfjár á gróðurhúsalofttegundum. Mótmælin eru þó sögð hafa verið minni í sniðum en búist var við. Erlent 20. október 2022 09:16
Rússar reyna að innlima losun hernumdra svæða Tilraunir Rússa til þess að innlima landsvæði sem þeir hafa hernumið í Úkraínu taka á sig ýmsar myndir. Nú þurfa úkraínsk stjórnvöld að verjast því að Rússar reyni að taka ábyrgð á losun gróðurhúsalofttegunda á hernumndu svæðunum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Erlent 19. október 2022 12:29
Persónulegar erjur og mismunandi áherslur áður komið í veg fyrir sameiningu Skógræktarstjóri segir mikilvægt að halda því til haga að fjölmargar tilraunir til að sameina Skógræktina og Landgræðsluna hafi klúðrast í gegn um tíðina. Hann er hóflega bjartsýnn á að það takist í þetta skiptið en ætlar að leggja sig allan fram. Innlent 19. október 2022 11:42
Losun frá tveimur jörðum sögð jafnast á við 800 bíla Votlendi sem var endurheimt á tveimur jörðum á vestanverðu landinu í haust er sagt hafa stöðvað losun á um 1.600 tonnum af koltvísýringi á ári. Það jafnast á við losun frá 800 fólksbílum árlega. Innlent 19. október 2022 09:23
Nýjar rannsóknir sýna risa gat á ósonlaginu yfir norðurskautinu Sögulegur leiðangur á norðurskautið hefur leitt í ljós að ekki hefur tekist að stöðva eyðingu ósonlagsins eins og vonir stóðu til. Hins vegar er ekki of seint að stöðva eyðingu norðurskauts íssins með skipulegum aðgerðum þjóða heims. Innlent 18. október 2022 19:41
Landgræðslan og Skógræktin í eina sæng Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að sameina skuli Skógræktina og Landgræðsluna. Starfsmönnum stofnananna hefur verið kynnt um komandi sameiningu. Innlent 18. október 2022 14:22
Einn hefur látist í gríðarlegum flóðum í Ástralíu Íbúar í þremur áströlskum fylkjum hafa þurft að flýja heimili sín vegna úrhellisrigninga og flóða. Í hluta landsins hefur rigning undanfarinn sólarhring verið fjórum sinnum meiri en að meðaltali í októbermánuði. Erlent 14. október 2022 08:22
Innanlandsvélar Icelandair gætu verið knúnar vetni eftir þrjú ár Tækni til að umbreyta olíuknúnum innanlandsflota Icelandair í vetnisknúnar flugvélar verður tilbúin eftir þrjú ár. Þetta kom fram á fundi um orkuskipti í flugi á Reykjavik Edition hótelinu í dag í tengslum við Hringborð norðurslóða. Innlent 13. október 2022 22:23
Pappaskeiðarnar heyra brátt sögunni til Eftir áramót verður hvorki boðið upp á plast- né pappaskeiðar með skyri og öðrum mjólkurvörum frá MS. Markaðsstjóri MS hvetur verslanir til að bjóða upp á skeiðar í verslunum í staðinn. Neytendur 13. október 2022 11:52
Hvernig og hvaðan koma orkuskiptin? Stjórnvöld hafa metnaðarfullar áætlanir í loftslagsmálum og stefna að kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum árið 2040 Augljóst er að orkufyrirtæki þjóðarinnar, öflugasta orkufyrirtæki landsins sem vinnur um 70% af allri raforku hér á landi, getur gegnt lykilhlutverki í að hrinda þeim áætlunum í framkvæmd. Skoðun 13. október 2022 10:00
Er allt vænt grænt? Það er mikið sótt að hugmyndafræði ESG um þessar mundir og hún gagnrýnd með ýmsum hætti. Það sem veitir gagnrýnendum byr undir báða vængi er meðal annars stríð í Úkraínu og áhrif þess á orkuöryggi og matvælaverð sem og yfirvofandi alþjóðlega efnahagslægð. Undir þeim kringumstæðum er eðlilegt að staldra við og endurhugsa málin. Umræðan 13. október 2022 08:01
Bein útsending: Orkuskipti í flugi - tækifæri fyrir Ísland Morgunfundur Icelandair, Isavia, Landsvirkjunar og Samtaka ferðaþjónustunnar sem ber yfirskriftina Orkuskipti í flugi - tækifæri fyrir Ísland hefst í dag klukkan 8:30. Búist er við því að fundinum ljúki klukkan 10. Viðskipti innlent 13. október 2022 08:01
Villtum dýrum fækkað um 70 prósent á fimmtíu árum Villtum dýrum á jörðinni hefur fækkað um tæp 70 prósent á rétt tæpum fimmtíu árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu en þar er ofurneyslu mannfólks, minnkun skóglendis vegna ágangs manna og mengun þeirra kennt um þessa gríðarlegu fækkun dýra. Erlent 13. október 2022 07:53
„Við verðum að grípa í taumana“ Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og einn flutningsaðila tillögu um yfirlýsingu neyðarástands í loftslagsmálum sagði í ræðu sinni á Alþingi í dag að stjórnvöld víðs vegar um heiminn væru að bregðast jörðinni. Nauðsynlegt sé fyrir stjórnvöld að lýsa yfir neyðarástandi. Innlent 12. október 2022 22:23
Telur það slæma hugmynd að skipta kjarnorku út fyrir kol Sænski umhverfisverndaraðgerðarsinninn Greta Thunberg varar við því að þýsk stjórnvöld loki kjarnorkuverum og framleiði í staðinn raforku með kolum. Til stendur að loka þremur þýskum kjarnorkuverum fyrir árslok á sama tíma og gömul kolaorkuver eru vakin upp frá dauðum. Erlent 12. október 2022 14:54
Beinum kröftum okkar á réttan stað Tímarnir hafa breyst. Núna er sama hvort viðmælandinn starfar hjá einka- eða ríkisfyrirtæki eða er við stjórnvölinn hjá félagasamtökum eða á þjóðarskútunni. Öll eiga það sameiginlegt að vilja leggja hönd á plóg í baráttunni gegn loftslagsvandanum. Þau gera það á eigin vinnustað og í einkalífinu en ekki síst með því að stuðla að samstarfi fjölda aðila alls staðar í samfélaginu. Skoðun 12. október 2022 10:01
Íhuga að skattleggja beljurop Ríkisstjórn Nýja-Sjálands lagði til að skattleggja losun gróðurhúsalofttegunda frá húsdýrahaldi í dag. Búfjárbændur hafa brugðist ókvæða við tillögunni sem þeir fullyrða að leiddi til atgervisflótta úr stéttinni. Erlent 11. október 2022 13:59
Þurfa að stórauka framlög til endurnýjanlegrar orku og aðlögunar Þjóðir heims þurfa að þrefalda framlög sín til uppbyggingar endurnýjanlegrar orkugjafar og tvöfalda framleiðslu á hreinni orku á næstu átta árum til þess að hægt verði að ná loftslagsmarkmiðum. Á sama tíma ógna loftslagsbreytingar orkuinnviðum heimsins. Erlent 11. október 2022 13:01
Á þriðja tug hafa farist vegna fellibyljar í Mið-Ameríku Minnst 28 hafa látist í gríðarlegum rigningum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Fellibylurinn Júlía sem gekk yfir svæðið hefur misst kraft sinn en enn rignir mikið í bæði Gvatemala og El Salvador. Erlent 11. október 2022 07:49
Þjófnaður á skyrlokum orðinn stórvandamál í Bónus Bónus í Kringlunni hefur þurft að farga hundruðum skyrdolla vegna þjófnaðar á loki umbúðanna. Vilji framleiðenda til að sporna gegn plastneyslu hefur skapað nýtt og ófyrirséð vandamál. Innlent 10. október 2022 23:00