Innlendar

Fréttamynd

Björgvin fékk fjögur gull

Helgin var góð fyrir þau Björgvin Björgvinsson frá Dalvík og Íris Guðmundsdóttur frá Akureyri en keppt var á Skíðamóti Íslands í Bláfjöllum um helgina.

Sport
Fréttamynd

Þormóður og Anna Soffía unnu tvöfalt

Þormóður Jónsson úr Júdófélagi Reykjavíkur og Anna Soffía Víkingsdóttir, Ármanni, urðu í dag tvöfaldir Íslandsmeistari í júdó en Íslandsmótið fór fram í Laugardalshöll í dag.

Sport
Fréttamynd

Gunnar Nelson fékk brons í júdó

Bardagaíþróttakappinn Gunnar Nelson vann í dag til bronsverðlauna á Íslandsmeistaramótinu í júdó sem fór fram í Laugardalshöllinni í dag.

Sport
Fréttamynd

Tap hjá íslensku stelpunum í fyrsta leik

Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí tapaði í kvöld 1-3 fyrir Nýja-Sjálandi í fyrsta leik sínum í 4. deild Heimsmeistarakeppni kvenna sem fram fer hér á landi og lýkur 1. apríl. Þetta er í fyrsta sinn sem svona mót er haldið á Íslandi.

Sport
Fréttamynd

Anton Sveinn bætti 22 ára gamalt Íslandsmet

Ægiringarnir Anton Sveinn Mckee og Eygló Ósk Gústafsdóttir settu bæði Íslandsmet á sterku sundmóti í Stokkhólmi um helgina. Eygló Ósk bætti sitt eigið met í 200 metra baksundi en Anton Sveinn bætti 22 ára gamalt met Ægiringsins Ragnars Guðmundssonar í 800 metra skriðsundi.

Sport
Fréttamynd

Aðeins Jón Arnar hefur náð betri sjöþraut en Einar Daði í gær

ÍR-ingurinn Einar Daði Lárusson náði næstbestu sjöþraut Íslendings innanhúss í sjöþrautakeppni sem fram fór á mánudag og þriðjudag í Laugardalshöllinni. Einar Daði hlaut samtals 5567 stig en bestan árangur Íslendings á Jón Arnar Magnússon sem náði 6293 stigum á HM í Maebasi í Japan árið 1999.

Sport
Fréttamynd

Dagný og Hafþór Íslandsmeistarar í keilu

Í gær réðust úrslitin í einstaklingskeppni í keilu í karla og kvennaflokki. Dagný Edda Þórisdóttir varð Íslandsmeistari í kvennaflokki og Hafþór Harðarson í karlaflokknum.

Sport
Fréttamynd

Einn nýliði í U21 árs landsliðinu sem mætir Úkraínu

Eyjólfur Sverrisson þjálfari U21 árs landsliðs karla í fótbolta valdi í dag leikmannahópinn sem mætir Úkraínu í vináttulandsleik á útivelli þann 24. mars. Leikurinn er hluti af undirbúningnum fyrir lokakeppni Evrópumeistaramótsin sem fram fer í Danmörku næsta sumar. Þann 28. mars leikur Íslands gegn Englendingum í Preston.

Fótbolti
Fréttamynd

Ragna tapaði naumlega og er úr leik í Sviss

Ragna Ingólfsdóttir, Íslandsmeistari í einliðaleik kvenna í badminton, er úr leik á opna svissneska meistaramótinu. Ragna lék gegn Carolina Marin frá Spáni sem er í 67. sæti heimslistans og tapaði Ragna naumlega eftir að hafa unnið fyrstu lotuna 21-19.

Sport
Fréttamynd

Viktor: Vill alltaf gera betur

Viktor Kristmannsson, fimleikakappi úr Gerplu, segist vera ánægður með árangurinn á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum um helgina þó svo að alltaf megi gera betur.

Sport
Fréttamynd

Meistarar í Versölum - myndir

Íslandsmótið í áhaldafimleikum fór fram í Versölum í Kópavogi um helgina en Viktor Kristmannsson og Thelma Rut Hermannsdóttir, bæði úr Gerplu, stóðu uppi sem sigurvegarar helgarinnar.

Sport
Fréttamynd

Thelma Rut og Viktor sigursæl í dag

Íslandsmeistararnir í fjölþraut, þau Viktor Kristmannsson og Thelma Rut Hermannsdóttir úr Gerplu, voru sigursæl þegar keppt var í einstökum áhöldum á Íslandsmótinu í dag.

Sport
Fréttamynd

Viktor og Thelma Rut meistarar í fjölþraut

Fyrsti hluti Íslandsmótsins í áhaldafimleikum fór fram í gær er keppt var í fjölþraut. Viktor Kristmannsson varð meistari í tíunda skiptið á ferlinum en í kvenna flokki bar Thelma Rut Hermannsdóttir, Gerplu, sigur úr býtum.

Sport
Fréttamynd

Þórir: Smánarlegt hvernig við komum fram við okkar afreksfólk

Framkvæmdarstjóri KSÍ, Þórir Hákonarson gagnrýndi stjórnvöld í pistli á heimasíðu sambandsins í gær. En Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra vill láta kanna möguleika á því að menning og listir fái hlut af þeim tekjum sem Íslensk Getspá hefur af Lottó. Lottótekjur skiptast nú á milli Öryrkjabandalags Íslands annarsvegar og ÍSÍ og UMFÍ hinsvegar.

Sport
Fréttamynd

Guðmundur varð Íslandsmeistari í borðtennis 18. árið í röð

Guðmundur Eggert Stephensen úr Víkingi tryggði sér Íslandsmeistaratitil í einliðaleik í borðtennis 18. árið í röð þegar hann vann KR-inginn Kára Mímisson 4-0 í úrslitaleiknum. Guðmundur hefur orðið Íslandsmeistari frá árinu 1994 þegar hann vann sinn fyrsta titil aðeins ellefu ára gamall.

Sport
Fréttamynd

Aðalheiður og Magnús Íslandsmeistarar í kata

Aðalheiður Rósa Harðardóttir frá Akranesi og Magnús Kr. Eyjólfsson úr Breiðabliki tryggðu sér Íslandsmeistaratitla í karla og kvennaflokki á Íslandsmeistaramóti í kata fullorðinna sem fór fram í íþróttahúsi Seljaskóla í gær.

Sport
Fréttamynd

Óðinn Björn langt frá sínu besta á EM í París

FH-ingurinn Óðinn Björn Þorsteinsson hefur lokið keppni í kúluvarpi á EM í frjálsum íþróttaum í París en hann var töluvert frá sínu besta í undankeppninni í dag. Óðinn kastaði lengst 17.31 metra og varð í næstsíðasta sæti af þeim sem náðu gildum köstum.

Sport
Fréttamynd

Óðinn Björn og Kristinn keppa í París

FH-ingarnir Óðinn Björn Þorsteinsson og Kristinn Torfason keppa á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum sem fram fer í París um helgina. Óðinn Björn keppir í kúluvarpi og Kristinn í langstökki og þrístökki.

Sport
Fréttamynd

Þormóður í fimmta sæti á heimsbikarmóti

Hermann Unnarsson og Þormóður Jónsson kepptu í dag í Varsjá á heimsbikarmóti í júdó. Í 81 kg flokknum sem Hermann keppir í voru 60 keppendur og mætti hann Eistlendingnum Georgi Ladogin sem varð þriðji á Evrópumeistaramóti U20 árið 2008.

Sport
Fréttamynd

Ragna selur fisk á Facebook

Það er ekki alltaf auðvelt að vera afreksmaður í íþróttum á Íslandi enda styrkir af afar naumum skammti. Það þekkir ein fremsta íþróttakona landsins, Ragna Ingólfsdóttir, afar vel.

Sport
Fréttamynd

Stórafmæli hjá Sundsambandinu

Sundsamband Íslands fagnar 60 ára afmæli sínu í dag og er vel við hæfi að sundþing sé sett á þessum merka afmælisdegi sambandsins.

Sport