Ísland hefði mátt taka 26 leikmenn á EM Sindri Sverrisson skrifar 23. apríl 2024 14:31 Úkraína getur sent 26 leikmenn á EM eftir að hafa slegið Ísland út í úrslitaleik umspilsins í mars. Getty/Andrzej Iwanczuk Þjóðirnar sem taka þátt á Evrópumóti karla í fótbolta í Þýskalandi í sumar mega taka með sér 26 leikmanna hópa, þrátt fyrir að kórónuveirufaraldurinn hafi ekki áhrif núna.
Mótaráð UEFA, knattspyrnusambands Evrópu, komst að þessari niðurstöðu og búist er við því að framkvæmdaráð sambandsins staðfesti þessa ákvörðun síðar í þessari viku. Til stóð að breyta aftur til fyrra horfs og hafa 23 leikmanna hópa í sumar líkt og tíðkast hafði fram að síðasta EM, en þá var ákveðið að hafa 26 manna hópa vegna óvissu sem fylgdi kórónuveirufaraldrinum. Stærri hópar voru einnig leyfðir á HM í Katar 2022 í ljósi þess að mótið fór fram á miðju keppnistímabili. Nokkrir landsliðsþjálfarar gagnrýndu það að færri leikmenn færu á EM, og á nýlegum þjálfarafundi kom fram sú tillaga að 26 manna hópar yrðu leyfðir. Ronald Koeman, þjálfari Hollands, hafði til að mynda sagt fyrri ákvörðun UEFA „fjarstæðukennda“. Alls taka 24 þjóðir þátt á EM líkt og tvö síðustu mót, en Ísland rétt missti af mótinu í ár eftir tap gegn Úkraínu í úrslitaleik umspils. Ef ekkert óvænt gerist, og ákvörðun um 26 manna hópa verður samþykkt, munu 624 leikmenn því fara á mótið. EM hefst 14. júní og stendur yfir til 14. júlí.
EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Fótbolti Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Bjarni lætur af störfum hjá KR Fótbolti Ítalía kom til baka gegn Albaníu Fótbolti Spánverjar skoruðu mörkin Fótbolti Hundraðasta mark Söndru Maríu kom í Garðabænum Íslenski boltinn Yngstur í sögunni: Fagnaði áfanganum með stoðsendingu Fótbolti Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Fótbolti Matija Sarkic látinn aðeins 26 ára gamall Fótbolti Cole Palmer skapaði óvart jarmveislu á Twitter Fótbolti Fleiri fréttir Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Hundraðasta mark Söndru Maríu kom í Garðabænum Ítalía kom til baka gegn Albaníu Spánverjar skoruðu mörkin Yngstur í sögunni: Fagnaði áfanganum með stoðsendingu Uppgjör: Stjarnan – Þór/KA 1-4 | Sandra María hættir ekki að skora Spánverjar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Sjáðu mörkin: Sviss byrjar af krafti „Það er erfitt að koma hingað og sækja stig“ Uppgjör: FH varði forskotið og tók öll stigin Emilía Kiær danskur meistari með Nordsjælland Öruggur sigur Sviss í fyrsta leik Brjálað stuð og blíða á pæjumótinu Cole Palmer skapaði óvart jarmveislu á Twitter Vistaskipti Ísaks til Düsseldorf staðfest formlega Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Matija Sarkic látinn aðeins 26 ára gamall Ratcliffe ræðst í fimmtíu milljóna punda endurbætur á Carrington æfingasvæðinu Spánverjar missa miðvörð í meiðsli fyrir fyrsta leik Lallana snýr aftur til Southampton Yngsti þjálfarinn stýrði stærsta opnunarsigri í sögu EM Sir Alex og Mourinho sátu saman á opnunarleik EM Öruggur heimasigur og sex mörk skoruð í opnunarleik EM Goðsögn kveður Dortmund Mættur á EM eftir að hafa gengið frá Glasgow til München Stórskotalið var á blaðamannafundi Vals Frábær umgjörð hjá kvennaliði Fylkis Everton vill fá 80 milljónir punda fyrir Branthwaite Skotar yfirtaka München: „Aldrei séð neitt þessu líkt“ Sjá meira