Ástin á götunni
285 286 287 288 289 290 291 292 293 … 334 ›
Henry á bekknum hjá Arsenal Thierry Henry verður á varamannabekknum hjá Arsenal í leiknum gegn Sparta Prag í Meistardeildinni á eftir, en Pascal Cygan og Kolo Toure verða vörninni. Þá koma þeir Robin van Persie og Gilberto aftur inn í liðið. Sport 23.10.2005 17:50
Wenger saknar Vieira Arsene Wenger hefur nú í fyrsta sinn viðurkennt að kannski hafði það ekki verið mjög góð hugmynd að selja Patrick Vieira til Juventus í sumar, en bendir á að liðið hafi verið einstaklega óheppið með meiðsli. Sport 23.10.2005 17:50
Hálfleikur í Meistaradeildinni Nú er kominn hálfleikur í leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu. Aðeins fjögur mörk hafa litið dagsins ljós til þessa og þar af eru tvö þeirra í leik Bayern Munchen og Juventus, sem fyrirfram hefði ef til vill ekki verið talinn markaleikur umferðarinnar. Sport 23.10.2005 17:50
Ferguson ekki kátur með jafnteflið Alex Ferguson var ekki par hrifinn af leik franska liðsins Lille í Meistaradeildinni í gær og sagði liðið aldrei hafa reynt að vinna leikinn. Einnig þótti honum rauða spjaldið sem Paul Scholes fékk í leiknum vera ansi strangur dómur. Sport 23.10.2005 17:50
Giggs verður frá í nokkrar vikur Ryan Giggs hjá Manchester United verður frá keppni í allt að sex vikur vegna kinnbeinsbrots sem hann hlaut í leiknum við Lille í Meistaradeildinni í gærkvöld og eykur þar með enn á ófarir liðsins, sem hefur verið einstaklega óheppið með meiðsli á leiktíðinni. Sport 23.10.2005 17:50
Melchiot meiddur Varnarmaðurinn Mario Melchiot hjá Birmingham verður frá keppni í þrjár vikur í viðbót vegna hnémeiðsla, en hann missti af leik liðsins við grannaliðið Aston Villa um helgina. Fyrir eru þeir Stephen Clemence og David Dunne meiddir og verða frá í nokkurn tíma. Sport 23.10.2005 17:50
Ferguson vill hafa Keane í liðinu Sir Alex Ferguson sagði í viðtali í gær að hann vildi hafa Roy Keane í liði sínu eins lengi og hann gæti reimað á sig skóna og hefur ekki gefið upp alla von um að halda fyrirliða liðsins hjá félaginu lengur en út þessa leiktíð. Sport 23.10.2005 17:50
Henry í metabækurnar Thierry Henry varð í gærkvöldi markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi, þegar hann skoraði tvö mörk í sigri Arsenal á Sparta Prag í Meistaradeildinni. Hann hefur nú skorað alls 186 mörk fyrir félagið, eða einu meira en Ian Wright. Sport 23.10.2005 17:50
Samningur Kerr ekki endurnýjaður Stjórn írska knattspyrnusambandsins ákvað á fundi í gær að samningur landsliðsþjálfarans Brian Kerr yrði ekki endurnýjaður og þar með er átta ára starfi hans með liðið senn lokið. Ákvörðunin kemur ekki á óvart í kjölfar þess að honum mistókst að koma írska liðinu á HM næsta sumar. Sport 23.10.2005 17:50
Cissé líklegur gegn Anderlecht Rafael Benitez segir vel koma til greina að nýta hungur franska framherjans Djibril Cissé með því að gefa honum tækifæri í byrjunarliðinu gegn Anderlecht í Meistaradeildinni annað kvöld, en liðin eigast við í G-riðli. Sport 23.10.2005 17:50
Giggs verður fyrirliði Ryan Giggs er kominn inn í byrjunarlið Manchester United á ný og verður fyrirliði liðsins í leiknum gegn Lille í Meistaradeildinni nú á eftir. Manchester United mun spila kerfið 4-3-3 í leiknum og Darren Fletcher mun taka stöðu Park Ji-Sung á miðjunni. Sport 23.10.2005 17:50
Meistaradeildin á Sýn í kvöld Nokkrir leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu í kvöld og aðalleikur kvöldsins á Sýn verður stórleikur Bayern Munchen og Juventus, en útsending hefst klukkan 18:30. Þá verður leikur Manchester United og Lille sýndur klukkan 21:20, en hann er sýndur beint á Sýn Extra klukkan 18:30. Sport 23.10.2005 17:50
Djurgarden sænskur meistari Djurgarden, lið Kára Árnasonar og Sölva Geirs Ottesen, tryggði sér sænska meistaratitilinn í knattspyrnu í kvöld, þegar liðið krækti í stig gegn liði Jóhanns Guðmundssonar, Örgryte. Þar með tryggði liðið sér sigur í deildinni þegar ein umferð er eftir, því Gautaborg tapaði fyrir Hammarby á sama tíma. Sport 23.10.2005 17:50
Jafnt hjá Charlton og Fulham Charlton og Fulham gerðu 1-1 jafntefli í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Collins John kom Fulham yfir í fyrri hálfleik en Danny Murphy jafnaði fyrir Charlton í upphafi síðari hálfleiks. Hermann Hreiðarsson lék allan tímann í vörn Charlton, en Heiðar Helguson fékk ekki tækifæri með Fulham. Sport 23.10.2005 17:50
Wenger þreyttur á meiðslum Arsene Wenger, stjóri Arsenal, virðist vera búinn að fá sig fullsaddan af tíðum meiðslum leikmanna sinna, ekki síst þegar þeir eru að spila með landsliðum sínum og telur það koma afar illa niður á Arsenal í deildarkeppninni. Meiðsli Alexander Hleb voru dropinn sem fyllti mælinn hjá Wenger. Sport 23.10.2005 17:34
Xavier féll á lyfjaprófi Portúgalski varnarmaðurinn Abel Xavier hjá Middlesbrough er kominn tímabundið leikbann í öllum keppnum, eftir að hafa fallið á lyfjaprófi sem hann fór í eftir leik Boro og Xanthi þann 29. september síðastliðinn. Sport 23.10.2005 17:34
Manchester United ræður þjálfara Manchester United tilkynnti í dag ráðningu nýs þjálfara fyrir unglingalið félagsins í stað Ricky Sbragia, sem gekk í raðir Bolton á dögunum. Nýji þjálfarinn heitir Rene Meulensteen og er hollenskur. Hann hefur verið hjá Manchester United síðan 2001 og hefur fram til þessa starfað sem tækniþjálfari hjá liðinu. Sport 23.10.2005 17:50
Kári og Sölvi sænskir meistarar ? Úrslitin í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta þetta tímabilið gætu ráðist ráðist á næstu 2 klukkutímum en nú kl. 17 hófust fjórir síðustu leikir næst síðustu umferðar. Djurgården sem er á toppnum heimsækir Örgryte og getur með sigri nánast gulltryggt sér sænska titilinn. Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen eru báðir á varamannabekk Djurgården. Sport 23.10.2005 17:34
Ferguson tekur ekki við Írum Sir Alex Ferguson brást ókvæða við þegar hann var spurður hvort hann ætlaði að taka við stöðu landsliðsþjálfara Íra eftir að Brian Kerr hætti með liðið, en haft var eftir Dennis Irvin, fyrrum leikmanni Manchester United, að Ferguson hefði verið í sambandi við írska knattspyrnusambandið um að taka við stöðunni. Sport 23.10.2005 17:34
Rooney verður í banni gegn Lille Manchester United verður án Wayne Rooney í leiknum gegn Lille í Meistaradeildinni annað kvöld, en liðið getur huggað sig við að Ryan Giggs kemur aftur inn í hópinn eftir að hafa misst af leiknum gegn Sunderland um helgina vegna tognunar á læri. Sport 23.10.2005 17:34
Djurgården sænskir meistarar Hvorki Kári Árnason né Sölvi Ottesen komu við sögu með liði sínu Djurgården sem tryggði sér sænska meistaratitilinn í knattpspyrnu í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Örgryte í næst síðustu umferð úrvalsdeildarinnar. Kári og Sölvi sátu á varamannabekknum allan leikinn. Sport 23.10.2005 17:50
Henry í hópnum gegn Sparta Prag Thierry Henry hefur óvænt verið settur inn í leikmannahóp Arsenal fyrir leikinn gegn Sparta Prag í Meistaradeildinni annað kvöld, en mikil meiðsli eru í hóp Arsenal þessa dagana. Henry hefur ekki spilað leik fyrir Arsenal síðan í lok ágúst vegna nárameiðsla. Sport 23.10.2005 17:34
Arsenal ekki sterkt án lykilmanna Knattspyrnustjórinn Martin Jol hjá Tottenham nýtur gríðarlegra vinsælda há stuðningsmönnum liðsins þessa dagana og varla hafa ummæli hans í garð erkifjendanna liðsins í dag verið til þess að draga úr aðdáun stuðningsmanna Tottenham. Sport 23.10.2005 17:34
Essien gæti fengið bann Miðjumaðurinn Michael Essien gæti átt yfir höfði sér leikbann fyrir ljóta tæklingu hans á varnarmanninn Tal Ben Haim hjá Bolton um helgina, en vel má vera að knattspyrnusambandið fari yfir myndband af atvikinu í vikunni. Sport 23.10.2005 17:34
Valsstúlkur úr leik í UEFA Cup Kvennalið Vals er úr leik í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu eftir 11-1 tap gegn Evrópumeisturum Turbine Potsdam en leikurinn sem fór fram ytra í dag var síðari viðureign liðanna í 8 liða úrslitum keppninnar. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði mark Vals þegar hún minnkaði muninn í 2-1 en hún tábrotnaði skömmu síðar og var skipt af velli... Sport 23.10.2005 15:05
Markið læknaði sár Cissé Franski sóknarmaðurinn Djibril Cissé hjá Liverpool virðist hafa gleymt óánægju sinni í herbúðum félagsins eftir að mark hans tryggði liðinu sigur á Blackburn í gær og hefur nú tekið stjóra sinn í sátt. Hann vandaði þó stuðningsmönnum Blackburn ekki kveðjurnar eftir leikinn. Sport 23.10.2005 15:05
Ívar & Brynjar með í sigri Reading Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson léku báðir allan leikinn með Reading sem endurheimti 2. sætið í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag með 2-0 sigri á Ipswich. Reading er 3 stigum á eftir toppliði Sheffield Utd í deildinni. Sport 23.10.2005 15:05
Leikmenn Guðjóns án sjálfstrausts Guðjón Þórðarson þjálfari enska 2. deildarliðsins Notts County veit ekki sitt rjúkandi ráð þessa dagana en lið hans lék í gær áttunda leik sinn í röð án sigurs þegar það steinlá fyrir Rochadale, 3-0. <em>"...Þegar menn vorkenna sjálfum sér hjálpar það engum og þess gætir einmitt meðal minna leikmanna um þessar mundir."</em> Sport 23.10.2005 15:05
Man City í fjórða sætið Andy Cole skoraði bæði mörk Manchester City sem læddi sér upp í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta nú síðdegis með sigri á West Ham 2-1. City komst í 2-0 en Bobby Zamara minnkaði muninn á lokamínútunum. City er með 17 stig í fjórða sætinu, jafnmörg stig og Man Utd sem er í 3. sæti. West Ham er í 9. sæti með 12 stig. Sport 23.10.2005 15:05
Robson tekur ekki við Írum Gamla kempan Sir Bobby Robson hefur vísað þeim getgátum að hann muni taka við írska landsliðinu á bug og segir að liðið sé nú þegar með góðan þjálfara í Brian Kerr. Ekki er þó búist við að samningur hans verði endurnýjaður úr því að liðið komst ekki í lokakeppni HM. Sport 23.10.2005 15:05